Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1903, Blaðsíða 103
Lincoln County. Klutti ltann þá til stjórnarseturs’ þess héraðs, Lake
Benton, en hélt þó búi sínu áfram eftir sem áður.
Finitán árum fyrir dauða sinn kendi hann fyrst sjúkleika þess, er
loks leiddi hann til bana, en það var krabbamein i vör. Hvað eftir
annað leitaði hann til bestu lækna Bandaríkjanna, en jreir gátu að
eins tafið fyrir hinu óumflýjanlega. Hann lá rúmfastur fjóra rnánuði
áður en hann lést og þjáðist mikið, en bar böl sitt með frábærlegu
þreki og stillingu. Hann dó í Lake Benton io. jan. 1901.
Óefað var Arni sál. Sigvaidason með hinum allra merkustu mönn*
urn meðal þjóðflokks vors í þessu landi. Hann hafði flesta þá kosti til
að bera, sem helst mega prýða sannan sveitarhöfðingja. Hann var
gáfaður raaður og vel að sér. Lundarlag hans var blítt og gott.
Hjartað var hreint og elskulegt. Avalt horfði hann á hina björtu hlið
lífsins og kom jafnan með sólskinið og ljósið með sér, hvar sent hann
kom. Ekki voru það einungis landar hans, sem virtu hann og elsk-
uðu, heldur líka menn af öllum þjóðflokkum, sem honum kyntust. —
Ef eg ætti að segja, hvaða þráður verið hafi sterkastur í sálarlífi þessa
göfugmennis, mundi eg hiklaust nefna guðhræðsluna, Guðhræðslan
gerði hann það, sem hann var. Hún hafði gagntekið alt hans sálarlíf,
og hún kom fram í öllum orðum hans og athöfnum. Trúin hans var
mesti virkileiki lífs hans. Hann vildi vera kristinn maður sjö daga —
en ekki bara einn dag — í viku. Hvert íslenskt mannsbarn í Miune-
sota blessar minniugu hans.
Minneota, Mxnn., 17. október 1902.
11. 11. J.
Olai-ur S, Thorglikssoh : Alinanak. 6.