Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1903, Blaðsíða 122
IOO
í varðturni Douglas-virkis, og' gaf hann óðar aðvörun
um, að kynblendingaflokkur væri í nánd. Semple ný-
lendustjóri og menn hans tóku sjónpípur sínar og sáu,
aö flokkur ríðandi manna stefndi að bygðinni. Ný-
lendustjórinn sagði: ,Vér verðum að fara og mæta
rnönnum þessum; látum oss hafa tuttugu menn til far-
arinnar*. En tuttugu og átta slógust í förina með
honum. Héldu þeir norður þjóðveginn og norður hjá
Inksterlæk og ætluðu sér að hafa tal af komumönnum.
Þegar nýlendustjórinn og menn hans komu til staðar
þess, sem kallaður er ,,Eikurnar sjö“ (Seven Oaks)
og dregur nafn af sjö feykistórum eikartrjám, sem
þar standa, beygðu hér um bil um þrjátíu kynblend-
ingar við og slógu hring um þá. Maður að nafni
Boucher, vinnumaður Norðvestur-félagsins, hafði orð
fyrir félögum sínum. Töluðust þeir við nýlendustjór-
inn og hann og 'spurðu hvor annan um, hverju sætti
slíkt feröalag. Var samtal þeirra alt annað en vin-
samlegt. Og að fám augnablikum liðnum heyrðust
tvö skot, hvort á eftir öðru, og þeir Holte lautenant
og Semple nýlendustjóri féllu til jarðar, hinn fyrr-
nefndi særður til ólífis, en hinn síðarnefndi með voða-
sári á annari síðunni. Það sló þegar í hina snörpustu
orustu. Menn nýlendustjórans voru í þéttri fylkingu,
umkringdir af mönnum Norðvestur-félagsins, svo þeir
fóru ekki varhluta af kúludrífu fjandmannanna. A
skömmum tíma lágu tuttugu og einn af mönnum ný-
lendustjórans og einn af hinurn dauðir á vígvellinum.
Auk Semples nýlendustjóra, sem Indíani nokkur hafði
unnið á til fullnustu, voru fallnir meðal annara Holte
lautenant, Rogers kapteinn, dr. James White og dr.
Wilkinson, prívatritari nýlendustjórans. Grið voru
ekki gefin utan einum inanni, John Pritchard, er
skotið var undan af frönskum manni, er Lavigne hét.
Hinir, sem eftir voru af liði nýlendustjórans, gátu
íorðað sér undan á flótta inn í skóginn, sem þá náöi
alla leið ofan á bakka Rauðár. Og þegar þeir komu
til virkisinSjSögðu þeir tíöindin af því, sem gerst hafði,