Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1903, Blaðsíða 119
97
17- des. 1880, dóttir Siguröar Antóníussonar, sem lengi bjó í Skála á
BerufjarSarströnd.
Þau Arni og Guðrún lielga, er síðar varð kona lians, komu
ásamt foreldrum hennar til Nýja Islands beina leið frá íslandi sum-
arið 1876.
SKAFTI AKASON er fæddur 10. sept. 1850 að Hamri í Laxár-
dal f Þingeyjarsýslu. Faðir hans var Ari Vigfússon bóndi að Hamri,
en móðir Ara, kona Vigfúsar, var Guðrún Aradóttir frá Skútustöðum
við Mývatn. Móðir Skafta, kona Ara, var Guðrún Asmundsdóttir,
Davíðssonar á Stóru Völlum í Bárðardal. Móðir Guðrúnar, kona
Asmundar, var Guðný Jónsdóttir frá Mýri í Bárðardal.
ANNA GUÐRÚN, kona Skafta, er fædd 28. okt. 1848 í Hrísey í
Eyjafirði. Faðir hennar var Jóhann skipstjóri og bóndi á ísólfsstcð-
um á Tjörnesi. Foreldrar Jóhanns voru þau Jón Sigmundsson og
Þórunn Nikulásdóttir á Akureyri. Móðir Önnu, kona Jóhanns, var
Guðrún, dóttir Þórðar Þorlákssonar, bónda á Skúmsstöðum í Land-
eyjum, og konu hans Guðrúnar Grímsdóttur.
KRISTJÁN JÓNSSON er fæddur í Fellsseli í Köldukinn 29.
sept. 1854. Faðir hans, sem enn er á lífi og á heima í Baldur, er
Jón Björnsson Kristjánssonar frá Illugastöðum í Fnjóskadal. Var
Björn faðir Jóns að nokkru leyti uppalinn hjá Birni í Lundi, föður-
bróður sínum, og var um tíma skrifari hjá Þórði sýslumanni Björns-
syni í Garði í Aðaldal. Kona Björns Kristjánssonar, en móðir Jóns
Björnssonar, var Álfheiður Einarsdóttir prests Tómassonar frá Grenj-
aðarstað. Þá er hann kvæntist henni, var hún ekkja séra Gísla
Víum. Þau Björn fluttu að Illugastcðum, þegar faðir hans brá búi.
Móðir Álfnheiðar hét Guðrún, dóttir Björns sýslumanns Tómassonar
á Knútstcðum. Hún var fjórgift. Þrír af mönnum hennar voru
prestar, einn bóndi. Börn hennar voru Jón bóndi á Vöglum, séra
Hálfdan, faðir Helga lektors, og Álfheiður. — Móðir Kristjáns og
kona Jóns Björnssonar (fyrri kona hans) var Margrét Sigríður, dóttir
Bjarna Jónssonar, er allan sinn aldur var í Fellsseli þangað til hann
vorið 1860 fluttist með foreldrum Kristjáus að Héðinshöfða. Þar
andaðist hann skömmu síðar um sumarið 72 ára gamall. Koua
Bjarna, mcðir Margrétar Sigríðar, var Ivristbjörg Arngrímsdóttir frá
Sigríðarstcðum í Ljósavatnsskarði. Þau hjón áttu 19 börn.
ARNBJÖRG, kona ICristjáns Jónssonar, er fædd í Hjarðarhaga á
Jökuldal 5. október 1858. Faðir hennar var Jón Eyjólfsson bóndi í
Hjarðarhaga. En móðir Arnbjargar, kona Jóns, var Guðlaug Sig-
Ólafur S, TitOKaetKSSuN ; Aluiapak. 7,