Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1903, Blaðsíða 74
52
tmm veriö hafa síra Páll Þorláksson. Hann fór til
Nýja Islands þegar haustiö 1876, en dvaldi þar þá ein-
ungis skamma stund. Hann kom þar aftur í október-
mánuði haustiö 1877 á ferö sinni ofan til Nýja Islands,
þar sem hann ætlaði sér að dvelja um veturinn. En
að líkindum hefir hann enga guösþjónustu haldið í þaö
skifti meöal Islendinga í Winnipeg. Seint í sarna
mánuði kom síra Jón Bjarnason til Witmipeg sunnan
frá Minneapolis. Hann hafði þá verið kallaður til
Nýja Islands og var á ferð þangað. Varö liann að
bíða í Winnipeg níu daga eftir farangri sínum.
Sunnudaginn 21. október 1877 flutti hann fyrstu guðs-
þjónustu meðal Islendinga í bænum í skólahúsi til-
heyrandi Meþódista kirkju einni (Grace Church). Fór
hann svo ofan til Nýja Islands,og þar voru þeir prest-
arnir báðir um veturinn.
En við og viö komu þeir sinn í hvert skiftið til
Winnipeg. Munu þeir þá ávalt hafa haft þar guðs-
þjónustur. Svo fór í Winnipeg sem niðri í Nýja Is-
landi, að það var sinn hópurinn af fólki, sem aðhylt-
ist hvorn þeirra. Samt voru það töluvert mikið fleiri,
sem aðhyltust síra Jón Bjarnason, enda myndaði hann
reglulegan söfnuð, og var hann ,,Þrenningarsöfnuöur“
ne.fndur. Er það fagurt nafn og hæfilegt og hefði átt
að haldast fram á þenna dag og tekur því nafni mikið
fram, er söfnuðurinn síðar tók upp. Ætti vel við
fyrir söfnuðinn, að taka nú það nafn upp aftur, og
kalla kirkju sína Þrenningarkirkja. Söfnuður þessi
var stofnaður 11. ágúst 1878. Til fulltrúa voru kosnir
Jón Þórðarson, Arngrímur Jónsson og Andrea Fischer.
En til djákna Arngrímur Jónsson, Helga S. Þorsteins-
dóttir og Jóhanna Skaftadóttir frá Reykjavík. Síra
Páll hefir ekki, að því er séð verður, myndað eig-
inlegan söfnuð, en hafði hóp af fólki, sem var
honum fylgjandi, sótti öll prestsverk til hans, þegar
unt var, og skoðaði hann sem andlegan leiðtoga. Oft-
ast munu guðsþjónustur hafa haldnar verið í húsi Is-