Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1903, Blaðsíða 118
og ágætustu í úrvalaliði vestur-íslensku frumbyggjanna.
Áriö 1881 hófst Islendingabygðin í Argyle. Og
voru þeir Sigurður Kristófersson og Skafti Arason
meðal þeirra, er hófu þar landnám. Nokkru síðar
settust þeir Kristján Jónsson og Árni Sveinsson einnig
þar að. Kristján hefir nú æði lengi átt heima í Baldur,
kauptúni nokkru sunnan við bygðina íslensku, og rek-
ið þar verslun, en hinir hafa alt til þessa búið á óðals-
jörðum sínum, og hefir búskapur þeirra stórkostlega
mikið færst út á seinni árum. Stendur hagur þeirra
allra með hinum mesta blóma. Allir hafa þeir tekið
góðan og mikinn þátt í félagsmálum sveitar sinnar,
bæði borgaraleguin og kirkjulegum.
Svo kvað Kristinn Stefánsson til silfrbrúðhjón-
anna á stórhátíðardeginum:
,,Ykkar dáð og orka hefir
arð úr grundu hafið mundum.
Fyrirmynd þið sanna settuð
sonum Fróns og þeirra konum.
Lengi vara manndómsmerkin,
mótið og kjarninn, sem þau hljóta,
þar sem forsjá frjáls og mannlund
framaverkin stunda saman."
ÁRNI SVEINSSON er fæddur í Tungu í Fáskrúðsfirði 6. nóv
ember 1851. Foreldrar hans, sem enn lifa, eru þau Sveinn Arnason
og Ingibjörg Björnsdóttir. Heimili þeirra er í Islendingabygðinni í
Norður-Dakota hjá Önnu dóttur þeirra og manni hennar Einari
Mýrdal. Þau Sveinn og Ingibjörg bjuggu lengi í Tungu áður en þau
fluttust til Vesturheims, — eins foreldrar Sveins: Árni Árnason og
Jngibjörg kona hans. — Björn, faðir Ingibjargar, móður Árna Sveins-
sonar, var Ásmundsson, en móðir ltennar var Anna Hallgrímsdóttir
írá Stóra Sandfelli í Skriðdal.
GUÐRÚN HELGA, kona Árna, er dóttir Jóns frá Gifsárstekk
í Breiðdal, sem enn er á lífi og býr í Argyle, Jónssonar Guðmunds-
sonar, er bjó til dauðadags í Kelduskógum á Berufjarðarströnd. Kona
Jóns Guðmundssonar var Guðrún dóttir.séra Guðmundar Skaftasonar,
prests í Beruflrði tt 1827'. — Móðir Guðrúnar Helgu, konu Árna,
fyrri ltona Jóns frá Gilsárstekk, var Guðný, er andaðist t Nýja íslandi