Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1939, Blaðsíða 63
ALMANAK 1939
63
N. Dak., og bjuggu þau hjón þar unz þau fluttu á
framangreint land 1899 er G. tók með heimilisrétti.
Eftir fá ár seldi G. það land og leigði síðan á
ýmsum stöðum bæði í bygðinni og síðast í grend við
Thornhill, Man. Árið 1911 fluttust þau til Víðirbygð-
ar og settust að á heimilisréttarlandi Tryggva sonar
síns og hafa búið þar síðan. Börn þeirra hjóna eru:
1. Tryggvi Jóhannejs (fynefndur), ógifitur, býr í
grend vjð Sylvan, P.O.; 2. Jóhanna Guðrún, gift
Gísla Jóhannsson, búsett í Vancouver, B. C.; 8.
Jónína Þórunn, gift enskum manni, búsett í Winni-
peg; 4. Gunnlaugur Júlíus, ógiftur heima; 5. Sigríð-
ur, gift frönskum manni, búsett í Winnipeg; 6. Elín
Guðný, gift frönskum manni, búsett í Winnipeg;
7. Jón, giftur konu af pólskum ættum, búsettur í
AVinnipeg; 8. Gunnar Jónas, ógiftur heima. Tvö dóu
ung, Einar og Guðný.
Þau hjón, Gunnar og Guðrún eru mestu gæða
hjón, skemtileg heim að sækja og hjálpsamir ná-
grannar með afbrigðum. Gunnar hefir .jafnan verið
hestamaður mikill og læginn við skepnu lækningar,
sérstaklega hesta. Kom það sér vel einkum á frum-
býlis árunum því Gunnar lá aldrei á liði sínu, hver
sem í hlut átti og var jafnan fljótur að bregða við ef
til hans var leitað þó oft væri lítið í aðra hönd.
Landnemi N.V. S. 5, 1-6
Halldór Guðmundsson
Halldór var ættaður úr Eyjafirði; mun hafa
komið snemma á árum vestur um haf, (skorta uppl.)
og dvalið nokkur ár í grend við Garðar, N. Dak., en
fór heim til íslands 1899 og kom til baka árið 1900
og settist að í þessari bygð og hafði lengst af heimili
hjá Sigríði Gunnlaugsdóttur og sonum hennar.
Tók með heimilisrétti ofangreint land en bjó
þar aldrei. Varð blindur eftir fá ár er hingað kom
og fluttist þá til Ingibjargar dóttur sinnar er var
þá búsett í Mouse River, N. Dak., og þar dó hann
fyrir mörgum árum síðan.