Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1939, Blaðsíða 49
ALiMANAK 1939
49
bury. Helga var greind kona og bókhneigð, og í
öllu tilliti mesta sóma kona. Þorgerður Ólöf dóttir
hennar tók góðan þátt í íslenzkum félagsskap, sér-
staklega lagði hún mikla rækt við leiklist og var þar
jafnan fremst í flokki, hún er vel greind og mann-
kostum búin. Helga er dáin 19. okt. 1934. Sonur
hennar er séra Sig. S. Christopherson, prestur í
Þingvallanýlendu, býr hann nú í Churchbridge og
er systir hans þar hjá honum.
Jón Sturluson Jónssonar frá Vattarnesi í Fá-
skrúðsfirði var í Glenboro frá 1905 til 1912, hann
vann hér algenga vinnu. Kona hans var Sigríður
Einarsdóttir Snjólfssonar og Kristínar Þorsteins-
dóttir. Þau voru væn og vel metin hjón. Þau fluttu
í Vatnabygðirnar í Sask. og Jón mun hafa numið
land nálægt Kandahar. Þau eru nú bæði dáin.
Börn þeirra eru: 1. Elin Björg, kona Ingvars
heit. Ólafssonar í Prince Albert; 2. Guðrún Katrín,
var gift G. J. Sveinbjörnsson bónda að Kandahar,
hún er nú dáin; 3. Jóhanna Stefanía, kona Friðfinns
0. Lyngdal, sem kaupmaður hefir verið á Gimli;
4. Jónína Sigríður, skólakennari, hvort hún er gift
eða á lífi er mér ekki kunnugt. Einn son áttu þau
er þau voru í Glenboro, Anton að nafni, sem nú er
dáinn. Þær systur voru allar myndarlegar og mann-
kostum búnar.
Hans Vilhjálmur Guðmundsson, var fæddur á
Raufarhöfn, N.-Þingeyjars. 1852. Kom vestur um
haf 1893, og settist að í Argyle, var lengi í Baldur
þar í sveit, um 1920 fluttist hann til Glenboro; hann
dó hér 5. ágúst 1924. Hans var þrígiftur, fyrsta
kona hans hét Kristín, um ætt hennar veit eg ekki.
Miðkona hans var Lilja Kristófersdóttir frá Ytri
Neslöndum við Mývatn. Síðasta kona hans var Þor-
björg Halldórsdóttir Þorgrímssonar, móðir hennar
hét Björg, hún var ættuð af Melrakkasléttu. Þor-