Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1939, Blaðsíða 44
44 ÖLAFUR S. THORGEIRSSON:
toba-vatn að vestan, síðan nam hann heimilisréttar-
land nálægt Amaranth, og bjó þar í 15 ár, síðar um
skeið að Bluff. Jóhannes var frábær myndar maður
í sjón og ekki síður í raun afbragðs búmaður og
fjárglöggur með afbrigðum, efnaðist svo vel á
stuttri búskapartíð að hann gat lifað rólega og á
hyggjulaus síðustu ár æfinnar. Hann var ágætur
íslendingur og ann öllu því bezta í íslenzku eðli, hann
var sannur trúmaður og lifði trú sína, barst lítið á
eins og allir þeir, sem meira er í spunnið. Þau
Jóhannes og Sigríður eru samvalin ágætishjón, og
drenglunduð í hvívetna. Til Glenboro komu þau
1928. Hann dó hér síðast í júní í ár, 1938.
Friðjón Kristinn Björnsson (John Christie). —
Fæddur að Hallson, N. Dakota, 27. nóv. 1887. For-
eldrar : Björn Kristjánsson, ættaður úr Reykjahverfi
og seinni kona hans Sigurlaug Einarsdóttir fædd í
Kollavíkurseli í Þistilfirði 12. nóv. 1867. Björn dó
í Dakota fyrir aldamót, Sigurlaug er enn á lífi í
Glenboro. John Christie, eins og hann er alment
kallaður, ólst upp hjá móðir sinni og Friðfinni Jóns-
syni er lengi bjó á Hólabygðinni og síðar í Argyle o?
Glenboro, kona hans er Guðbjörg Bjarnadóttir, ætt-
uð úr Þistilfirði. Hún var áður gift Þorsteini Bergs-
syni Mýrdal, bónda í Argyle-bygð, dáinn 27. aes.
1921. Börn hennar af fyrra hjónabandi eru:
1. Bergsteinn; 2. Sigríður Bjarney, gift Albert
Jóni Oliver frá Brú í Argyle-bygð. Þau eiga heima í
The Pas í norður Manitoba; 3. Guðmundur Friðrik;
4. Þorgerður Laufey; 5. María Harriet Þorsteina.
Af síðara hjónabandi er ein dóttir, heitir Emily
Sigurlaug. Guðbjörg bjó í Glenboro mörg ár eftir
hún misti manninn. John Christie var þar einnig
um tíma, hann er stiltur maður, trúverðugur og
iðjusamur og hefir bjargast allvel, hann hefir um
allmörg ár stundað landbúnað í Argyle-bygðinni.