Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1939, Blaðsíða 50
50 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
björg var fóstruð af föðursystir sinni Guðrúnu Þor-
grímsdóttir og manni hennar, Sigurbirni Árnasyni,
sem lengi bjuggu í Argyle-bygð en eru nú bæði dáin.
Þorbjörg var fædd 1880 en kom vestur 1888. Af
fyrsta hjónabandi er á lífi ein dóttir, heitir Jóhanna,
gift hériendum manni George Poyner, búa þau ná-
lægt Souris, Man. Af síðasta hjónabandi eru þrjú
börn: 1. Kristín Lilja; 2. Sigurður Sigurbjörn og 3.
Guðmundur Einar, bankaþjónn. Öll börnin hafa
heimilisfang í Glenboro hjá móður sinni. Hans var
bókhneigður maður en ekki mikill athafnamaður.
Baldvin Sigurðsson, hann mun hafa verið fædd-
ur á Brúnagerði í S.-Þingeyjarsýslu um 1853. Kom
vestur um haf 1885 og fór til Argyle-bygðar. Þar
var hann allmörg ár, en flutti síðan til Glenboro og
bjó þar all-lengi. Baldvin var trésmiður og lagði
hann á margt gjörfa hönd. Kona hans var Nanna
Halldórsdóttir Árnasonar frá Krossastöðum í Eyja-
firði og konu hans Jóhönnu Sigurlaugar Jónsdóttir
frá Rútsstöðum þar í sýslu. Þau Baldvin og Nanna
skildu eftir nokkurra ára sambúð, fór hann vestur
á Kyrrahafsströnd fyrir um eða yfir 30 árum síðan
og dó hann á Hunter-eyjunni í British Columbia 5.
nóv. 1925. Nanna var greind kona og vel pennafær
og vel að sér um margt en skaplyndi þeirra hjóna
var ólíkt, hún dó hér 28. janúar 1916.
Börn þeirra eru þrjú: 1. Herbert, bóndi hér í
Sveitinni, giftur Kristrós Helgu Þorfinnsdóttir Jó-
hannessonar frá Flögu í Breiðdal í S.-Múlasýslu og
konu hans Karólínu Rannveigar Andrésdóttir frá
Eystralandi í Axarfirði; 2. Jóhanna Margrét, gift
hérlendum manni, eiga þau heima í Winnipeg; 3.
Thelma, gift Kristjáni Þorsteinssyni í Winnipeg, er
hann ættaður af norðausturlandi.
Kristján Sigurðsson, var fæddur á Landamóti í
Köldukinn í S.-Þingeyjarsýslu í júlí 1845, bjó faðir