Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1939, Blaðsíða 66
66 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
5. Benidikt Sigurður, giftist 1914 Stefaníu Guð-
rúnu Jónatansdóttur Líndal. Leigðu þau hjón
lönd í bygðinni um nokkurra ára skeið unz hann
dó úr spönsku veikinni 11. nóv. 1918. Var hann
mesti dugnaðarmaður og gæðadrengur. Ekkju
hans átti síðar Stefán Einarsson bónda í bygð-
inni (sjá þátt Sigríðar Gunnlaugsdóttur hér að
framan.)
6. Kristíana Þorbjörg, giftist 1916 Stefáni Good-
man í grend við Mozart, Sask., misti hann 1919
úr spönsku veikinni. Þau eignuðust einn son.
1921 giftist hún í annað sinn Jónatan Nicklin,
dóttursyni Jónatans J. Líndal, og búa þau í
grend við Mozart, Sask. Hafa eignast 5 börn,
(2 dáin).
7. Sigfríður Björg, giftist 25. maí 1916 Ingimar F.
Líndal, (verður getið síðar).
8. Ásta Sigurlín (áður nefnd), giftist 5. maí 1920
Gústaf Eðvarð Pálssyni ísakssonar (sjá þátt
Páls). Leigja iþau land í bygðinni og eiga part
af landi skamt frá; þau eiga eina dóttur.
9. Jónína Herdís, giftist 18. feb. 1919 Jóni B.
Johnson (verður þeirra getið síðar).
10. barnið mistu þau ól. og Júlíana á unga aldri.
Landnemi S.A. (4 S. 1, 1-6
Jón S. Laxdal
Jón er fæddur 10. des. árið 1870 á Krossastöð-
um á Þelamörk, sonur sjálfseignarbóndans þar Sig-
urðar Sigurðssonar og konu hans Maríu Guðmunds-
dóttir frá Moldhaugum við Eyjafjörð. Faðir Sig-
urðar var Sigurður bóndi á Þverbrekku í Eyjafjarð-
arsýslu og á Silfrastöðum í Skagafjarðarsýslu,
Sigurðssonar prests á Auðkúlu í Húnavatnssýslu,
Sigurðssonar bónda á Lóni í Hörgárdal (d. 1805)
Tómassonar bónda á Jökli, Sn.jólfssonar, Guðmunds-
sonar Nikulássonar Engaríussonar (enskur maður).
Sigurður faðir Jóns flutti frá Krossastöðum að
Geitaskarði í Langadal í Húnavatnssýslu, svo að