Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Qupperneq 31
ALMANAK
33
sonar bónda á Víðir, Man. Þessi skóli brann 6. febr. 1943,
byggður aftur vestar á sama landi 1944, sá flutningur
þótti þægilegri fyrir börnin. Síðastliðið sumar (1945) var
þar einnig byggt hús fyrir kennarann.
Annar skóli er ber nafnið “Vestri” var byggður á eldri
takmörkum byggðarinnar, mílu norðar en nú er, á N.E.
V4, Sec. 1, Township 23, R. 1E. árið 1913. En svo eftir
nokkur ár var hann fluttur suður að Township-línu á land
Andrésar Félsted, S.W. %, Sec. 6, Township 23. Sá skóli
var rifinn 1940, og byggður aftur í nútíma stíl sama ár.
Fyrsti kennari við þann skóla var: Miss Björg J. Thor-
kellsson frá Lundar, Man., d. 15. marz 1943. Sömuleiðis
var þar byggt kennarahús síðastliðið sumar (1945).
Umtal um stofnun lestrafélags varð 1904. En 12. marz
1905 var komið saman að Framnesi, með þeirri á kvörð-
un að koma lestrafélags hugmyndinni í framkvæmd.
Fundarstjóri var kosinn Guðmundur Magnússon; gat
hann þess að myndað hefði verið lestrafélag í Isafoldar-
byggðinni, sem dáið hefði út við burtflutning manna það-
an, 1902-1)3. Samkvæmt reglum þess félags, áttu þeir
bækurnar, sem lengst höfðu borgað ársgjöld sín, sem
voru: Jón Jónsson yngri á Framnesi og Guðm. Magnús-
son. Stóðu nú þessar bækur til boða, ásamt $6.00, er bók-
unum fylgdi, ef að menn hér vildu nú mynda lestrafélag.
Þessu boði var tekið með þökkum, lestrafélag stofnað, er
bæri nafnið “Mímir”. Forsetikosinn Tryggvi Ingjaldsson,
ritari Þorsteinn Hallgrímsson, féhirðir Mrs. Ragnheiður
Gunnarsson, og bókavörður Jón Jónson yngri á Framnesi.
“Mímir” hefur nú nær 600 bækur, félagið ætíð fremur
fáment. Byggt var hús fyrir bækurnar 1943 á landi nú-
verandi forseta þess, Magnúsar Gislasonar, kona hans
Ástríður er bókavörður.
Samkomuhús byggðarinnar var byggt 1913, rétt við
fljótið, á landi Björns J. Björnssonar, River lot 26, T. 22,
R. 2E., er hann nefndi “Bjarnastaðahlíð”. Síðar var það