Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Page 77
ALMANAK
79
námi sínu og vakið athygli á sér með skáldskap sínum.
16.-22. júní—Lýðveldisdags Islands minnst með fjöl-
sóttum hátíðahöldum í Vancouver, B.C., Chicago, Blaine
and Seattle, Wash., Wynyard, Sask., að Mountain, N.D.,
og Hnausum, Man.
27.-30. júní—Tuttugasta og fjórða ársþing Hins sam-
einaða Kirkjufélags Islendinga í Norður-Ameríku haldið
í kirkju Sambandssafnaðar að Lundar, Man. Séra Eyjólf-
ur J. Melan var endurkosinn forseti. — Samtímis var þar
haldið tuttugasta ársþing Sambands kvenfélaga kirkju-
félagsins. Mrs. S. E. Bjömsson var kosin forseti og þær
Mrs. Guðrún Johnson, Arnes, Man., og Mrs. Stefanía
Pálsson, Wpg., voru kosnar heiðursfélagar Sambandsins.
27. júní -1. júH—Hið sxtugasta og annað ársþing Hins
evangehska lúterska kirkjufélags Islendinga í Vestur-
heimi haldið í Minneota, Minn., í Bandaríkjunum. Dr.
Haraldur Sigmar endurkosinn forseti félagsins.
Júlí—Blaðafrétt skýrir frá því, að Walter Kristjánsson
(sonur Mr. og Mrs. Otto Kristjánsson, Geraldton, Ont.),
er lauk þriðja árs prófi í læknisfræði á Queens háskólan-
rnn á nýhðnu vori, hafi hlotið hin svonefndu “Boaks”-verð-
laun fyrir frábæra frammistöðu í líffærafræði.
7. júh—Fór fram fjölsótt og virðuleg vígsla sumar-
búða, er Bandalag lúterskra kvenna hafði látið reisa við
Húsavík, Man. Dr. Haraldur Sigmar, forseti kirkjufél-
agsins lúterskra, framkvæmdi vígsluna, séra Runólfur
Marteinsson flutti vígsluræðuna og séra Egill H. Fafnis
stjómaði athöfninni.
Júh—Um það leyti lauk Miss Thora Ásgeirsson (dóttir
Jóns og Oddnýjar Ásgeirsson í Winnipeg) kennaraprófi
(A.A.M.-prófi) í píanóleik og hljómfræði við tónlistardeild
Manitoba-háskóla, og hlaut langhæzta einkunn þeirra, er
gengu undir samskonar próf að því sinni, enda hefir hún
þegar unnið sér mikið álit sem píanóleikari, og oftar en
einu sinni hlotið verðlaun fyrir lærdóm og tækni.