Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1947, Qupperneq 86
88
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
eldrar: Teitur Guðmundsson og Sigríður Magnúsdóttir. Flutt-
ist vestur um haf til Canada 1895, og hafði verið búsett í Mani-
toga, að undanteknum tveim árum í British Columbia.
12. Rósa Jóhannesson, að heimili sínu í Winnipeg. Fædd 3. ágúst
1854 á Björgum á Skagaströnd í Húnavatnssýslu. Foreldrar:
Jóhannes Loftsson og Guðný Guðmundsdóttir. Kom til Canada
fyrir 52 árum og hafði ávalt átt heima í Winnipeg.
15. Astrós Jónsson, að heimili sínu í Winnipeg. Hún var 82 ára
að aldri, ættuð frá Spágilsstöðum í Dalasýslu, og hafði dvalið
full 50 ár vestan hafs.
17. Ásgeir Tryggvi Jónasson, að heimili sinu í Selkirk, Man. Fædd-
ur 10. okt. 1859 að Skútustöðum við Mývatn í Suður-Þing-
eyjarsýslu. Fluttist vestur um haf 1894 og hafði verið búsettur
í Selkirk nálega 50 ár.
17. Thora (Thorne) Paulson, að heimili sínu í Vancouver, B.C.
Fædd að Vatnsenda í Eyjafirði 25. apríl 1873. Fluttist þriggja
ára vestur um haf til Kinmount, Ont., með foreldrum sínum
H. Sigurðsson og konu hans. Var lengi búsett í Foam Lake,
Sask., en allmörg síðustu árin í Vancouver.
18. Þóra Gíslason, (kona Ingvars Gíslason), úr Reykjavíkur-byggð-
inni í Manitoba, á Grace sjúkrahúsinu í Winnipeg. Fædd á
Skógtjöm á Álítanesi 10. okt. 1874. Foreldrar: Guðmundur
Rúnólfsson og Oddný Steingrímsdóttir. Fluttist vestur um haf
til Canada 1913 ,og höfðu þau hjón verið búsett í Reykjavíkur-
byggðinni jafnan síðan.
25. Bjöm Sigurðsson Crawford, að heimili dóttur sinnar og tengd-
asonar (Elízabetar og Guðjóns Goodman) í Winnipeg. Fæddur
á Kambi í Króksfirði í Barðastrandasýslu 14. febr .1858. For-
eldrar: Sigurður Sakaríasson og Ragnheiður Björnsdóttir. Flutti
til Vesturheims 1891 og átti lengstum heima í Winnipegosis
og nágrenni.
MARZ 1946
1. Frímann Jóhannes Frímannsson, á elliheimilinu “Betel” að
Gimli, Man. Fæddur að Öxl í Húnavatnssýslu 28. júní 1863.
Foreldrar: Frímann Rúnólfsson og Sigríður Þorsteinsdóttir.
Fluttist vestur um haf til Canada aldamótaárið og hafði altaf
verið búsettur í Nýja íslandi.
2. Ekkjan Kristbjörg Guðbrandsdóttir Breiðfjörð, að heimili sínu
í grennd við Churchbridge, Sask. Fædd 8. okt. 1859 á Kirku-
bóli í Barðastrandarsýslu; hafði dvalið langvistum í Vestur-
heimi. Meðal barna hennar er séra Magnús Breiðfjörð, þjón-
andi prestur í New York.
10. Ekkjan Jónína Sigurrós Jónsdóttir Arason, að heimili dóttur
sinnar að Gimli, Man. Fædd 7. júlí 1866 að Moldhaugum í
Kræklingahlíð í Glæsibæjarsókn í Eyjafjarðarsýslu. Fluttist til
Gimli árið 1912.
14. Auðunn Arngrímsson, að heimili dóttur sinnar i Winnipeg, 85