Jólabókin - 24.12.1920, Page 19
17
orð af vörum hennar og faðma hana að þér, sem engil
Guðs á himnum.
Hún kemur ekki til þín, en þú getur komið til henn-
ar, — viljir þú það sjálfur og leggir leið þína þangað.
Þegar Förumaðurinn hafði lokið máli sínu, var yfir-
bragð konungsins einnig orðið blíðlegt, og augun döggvuð
tárum. Hann reis aftur úr hásætinu og rétti Förumann-
inum hendina.
Eg er þér þakklátur, mælti hann, fyrir það, sem þú
hefir sagt mér. Það var einmitt þetta, sem eg þarfnaðist
að heyra. Trú mín og von eru eins og örmagna fuglar,
með lömuðum vængjum.
Vertu gestur minn nú um heilaga Jólahátíð. Vertu hjá
mér og segðu mér meira um leiðina frá Betlehem til
Golgata.
Arni Jóhannsson.
2