Jólabókin - 24.12.1920, Page 28

Jólabókin - 24.12.1920, Page 28
26 dag og slepti þér aftur, án þess að óska mér nokkurs hlutar. Konan mín segir, að ég hefði átt að óska mér einhvers. Hún getur ekki verið lengur í kofanum okkar. Hún þyrfti betri bæ«. »Farðu heim, maður minn, ósk konu þinnar er upp- fylt«, sagði fiskurinn. Sjómaðurinn fór heim til sín. Og konan hans var ekki í gamla kotinu. Hún sat í dyrunum á nýjum bæ og var mjög ánægð. Tók hún í hönd bónda síns. leiddi hann inn og sagði: »Komdu nú og sjáðu, hvort nýi bærinn er ekki betri en sá gamli«. Bóndinn fylgdist með konu sinni inn. Varð nú fyrir þeim falleg dagstofa. I henni var fágaður ofn. Svefnher- bergi var prýðilegt. Eldhúsið var ágætt, og í því. voru leirílát og koparáhöld. Alt var þetta nýtt og af beztu gerð. En útifyrir var garður, og voru þar hænsn og hænuungar. Og við hlið þessa garðs var annar garður. Þar uxu ávextir, og þar óx kálgresi. »Lýttu nú á«, sagði húsfreyja, »er þetta ekki gott og blessað?« »Ojú, meðan það er nýtt verður þú ,ánægð með það, en svo skulum við sjá hvað skeður«, sagði bóndinn. »]á, sjáum hvað setur«, mælti konan. Hálfur mánuður leið, og bóndi var mjög ánægður, þangað til kona hans gerði honum bilt við og mælti: »Þegar að er gætt, bóndi sæll, þá er þetta einungis kot- bær. Við þurfum stærri bústað og víðáttumeira land. Ef fiskurinn er í raun og veru konungssonur í álögum, þá gæti hann látið okkur fá stærra hús. Eg þrái meira en alt annað að eiga heima í steinkastala. Finn þú fisk- inn að máli, og bið þú hann að byggja okkur kastala«.

x

Jólabókin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.