Jólabókin - 24.12.1920, Page 31

Jólabókin - 24.12.1920, Page 31
29 -ungur, þá langar mig til að verða drotning. Og farðu jiú og segðu fiskinum það, sem eg segi«. »Þetta er óþarft, kona! Eg get þetta ekki«. »Hví skyldir þú ekki geta það? Vertu góður eigin- maður. Farðu nú strax. Eg má til að verða drotning!« Bóndinn lagði af stað hryggur í huga. »Þetta er ekki rétt«, sagði hann við sjálfan sig. »Þetta er rangt«. En •hann hélt áfram. Og er hann kom að ströndinni, sá hann að sjórinn var ókyrr og dökkur á að líta. Bárurn- ar brotnuðu við ströndina og létu óðslega, eins og þær væru reiðar. En bóndinn sagði hóglátlega: „Við þig eiga vil eg tal, vinur minn í flyðrusal, Isabella óskar. þess, er óttast eg að setja í vess!“ »Hvað þá?« rumdi fiskurinn, er hann kom upp úr sfónum. »Ekki er hún ánægð!« sagði bóndi. »Nú vill hún verða drotning«. »]æja þá, farðu heim. Hún verður drotning«. Þegar fiskimaðurinn nálgaðist heimkynni sitt, var kast- alinn horfinn. En hann sá höll mikla. Hún varð stærrí og stærri eftir því sem hann kom nær. Á öðrum enda hennar var turn, og öll var hún skreytt. Varðmaður stóð við hliðið. Hermenn léku á hljóðfæri og slógu bumbur. Þegar fiskimaðurinn kom að höllinni, sá hann að hún var bygð úr marmara. Ekkert hafði verið til sparað. Húsgögn voru dýr og góð. Gluggatjöld, rúmtjöld og gólfklæði voru kögruð gulli. Fiskimaðurinn gekk inn í þetta stóra og veglega heimkynni. Inni sat kona hans í hásæti. Var það úr gulli og greipt dýrum steinum. Kórónu bar hún á höfði sér og hafði veldis- >

x

Jólabókin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.