Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Page 16

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Page 16
270 Lífsviðhorf guðspekinnar. IÐUNN vér vinnum með honum, hafa verk vor eilífðargildi. Þetta er sú sköpunarlist, sem vér eigum að læra. Hvert barn getur lært þessa list. Þrátt fyrir alla galla og ófullkom- Ieika vora á því stigi, sem vér nú stöndum á, gefum vér nú þegar lært þessa list. Það er að eins eitt, sem er nauðsynlegt: sú ráðvendni hjartans og sakleysi handar- innar, sem talað er um í biblíunni. Vér verðum öll að verða lífil börn, eins og Kristur sagði, ef vér eigum að læra þessa guðlegu iðn. En hún lærist að eins með því, að æskja engra launa fyrir unnið starf. Ef til er nokkur erfðasynd, sem fylgir Adamsætt, þá er það þessi meðfædda ósk um laun. \Jér viljum hljóta viðurkenning fyrir fyrirhöfn vora, lof fyrir unnin störf og að lokum himnaríkissælu fyrir að hafa þjónað guði. Vér þorum ekki að vera ein með verkum vorum. Vér viljum hljóta viðurkenning vina vorra, þakkir fjöldans, og sjálfur drottinn á helst að brosa til vor. Vér fáumst því að eins til að halda áfram vinnu vorri, að vér sjá- um ávöxt af því, sem áður hefir verið gert. Ef vér höf- um ekki von um einhver laun, kærum vér oss ekki um að halda áfram starfinu. Hvers vegna ætti ég að leggja á mig kvöl og þjáningu við að vinna eitthvert verk, ef ég hefi engan hag af því? Þetta er það, sem oss hefir verið kent frá barnæsku. En þetta er boðskapur óhreinleikans. Sálin, sem er neisti af guðdóminum, saurgast af öllu, sem verður til að skilja hana frá heildinni. Sá, sem óskar launa, finn- ur aðeins sjálfan sig aftur og aftur, í margskonar dul- argerfum, en aldrei hugsjón sína. Guð segir ekki: Þú mátt ekki æskja launa. Þvert á móti, hann gefur oss þau, ef vér biðjum um þau. En sérhver laun, sem vér öðlumst, eru að eins andlit sjálfra vor með nýja grímu. Loks kemur sá dagur, að vér er-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.