Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Page 36

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Page 36
290 Annie Besant. IDUNN um. Rithöfundarstarf hennar er dæmalaust. Árið 1923 var tala þeirra bóka og bæklinga, er hún hafði skrifað um ýms efni 434. Síðan hefir mikið bæst við. Og tekið hefir hún þátt í stjórn /2 tímarita. Eg sem þetta rita átti eitt sinn tal við séra Jónas á Hrafnagili um Annie Besant. (Hann og Oddur Björns- son prentari á Akureyri voru með fyrstu, eða fyrstu fylgismenn hinnar guðspekilegu heimspeki hér á landi). Hann sagðist dást mikið að þessum fádæma dugnaði A. B. og rökföstu ritum hennar. Annari konu sagði hann samt að hann fyrir sitt leyti dáðist margfalt meira að. Það væri H. P. Blavatsky hin rússneska, sagði hann. Það hefði verið hún, sem eiginlega hefði fundið guð- spekina, safnað rökunum í heimspekikerfi. Sumir segja að, að vísu sé Annie Besant dásamlegur rithöfundur, en þó sé C. W. Leadbeater miklu meiri> hann segi miklu meira. Þetta getur alt verið rétt. En hitt er þá og jafnrétt, að hvorugur þessara rithöfunda hefir til að bera ritsnild, list á borð við Annie Besant. Enginn gefur eins góðar og ítarlegar skýringar á öllu út í æsar eins og hún, enginn skrifar betur fyrir fjöldann en hún. Enginn ber eins ástúðlega umhyggju fyrir lesandanum eins og hún. Þótt ekki verði á móti því borið, að H. P. Blavatsky hafi verið framúrskarandi vitkona og að hún sé fyrsti frumherji guðspekinnar eins og hún er nú boðuð, þa hefir samt Annie Besanf leiðrétt sumt hjá henni, fært alt til alþýðlegra máls og borið stefnuna fram til stór- sigra um heim allan. Eg man ekki að Iðunn hafi nokkurn tíma minst einu orði á guðspeki (Theosophia). Mér finst það óhjá- kvæmilegt, að lesendur hennar verði að þola að nu se gerð nokkur grein fyrir guðspekinni með fám orðum >

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.