Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Blaðsíða 39
IÐUNN
Annie Besant.
293
gangi að vísu lengst. Sannanaskortur er því ekki meiri
fyrir kenningum guðspekinnar, en fyrir því, að jörðin
gangi í kringum sólina.
En það, sem einkennilegast þykir við guðspekina, eru
kenningar hennar um lögmál orsaka og afleiðinga og
endurholdgunarkenningin, Ekki eru þetta þó nýjar kenn-
ingar, heldur finnast þær í öllum meiri háttar trúar-
brögðum og gömlum goðsögnum t. d. í Asatrúnni. Alt
er þetta gamalt. »Ekkert er nýtt undir sólunni«. Sumir
segjast kunna hálfilla við allar þessar jarðarfarir guð-
spekinnar! Getur það verið að lögmál lífsins hafi gleymt
að spyrja eftir þeirra vilja ?
Annie Besant hefir skrifað bók, sem heitir á ensku
The ancient wisdom, en á sænsku Den uráldriga vis-
domen, — hin eldgamla speki. Fáar, eða engin ein bók
mun fjalla um öll atriði guðspekinnar jafn ítarlega, rök-
fast og vísindalega eins og þessi. Þar er svo að segja
sannað, að allar þessar kenningar guðspekinnar séu
gömul og hálfgleymd, eilíf sannindi. Rökrétt ádeila verð-
ur naumast gerð á þessa bók. Enginn guðspekifélagi er
þó neyddur til þess að trúa þessum kenningum. Það,
sem mest einkennir Annie Besant og aðra helztu braut-
ryðjendur guðspekinnar — er frjálslyndi í trúarefnum.
Minnist í þessu sambandi helstu forvígismanna félagsins
hér á landi: séra ]ónas Jónasson, ]ón Aðils ]ónsson,
Sig. Kristófer Pétursson o. fl.
En afleiðingar rökfastra hugsana um eilífðarmálin
verða niðurstöður guðspekinnar. Annars verður alt ó-
guðleg grimd í flestra augum, eða öngþveiti hringavit-
leysunnar.
Ég verð enn að minnast hér lauslega á örfá at-
riði, sem einkenna guðspekina og eru ekki ómerkileg.
»Erfðasynd« er ekki til öðruvísi en okkar eigin synd,