Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Blaðsíða 32
286
Annie Besant.
IÐUNN
konu. Þær ferðuðust mikið um Frakkland og Þýzkaland,
lásu mikið, iðkuðu guðrækni í bókstafstrúarstíl og lögðu
stund á margs konar fræði. 1870 tók Annie Besant próf
í náttúruvísindum við Lundúna háskóla.
Þegar hún var á 19. ári varð fyrsti stórviðburður í
lífi hennar, segir hún í æfisögu sinni, er hún hefir sjálf
ritað. Hún rak sig á mótsagnir í biblíunni! Sama ár
kyntist hún ungum presti. Og litlu síðar var hún látin
giftast honum. Þau áttu ekki saman og hjónabandið
varð óhamingjusamt. Með sorgum og harmkvælum vina
og vandamanna skildi hún við manninn. Á þessum ár-
um skeði annar stórviðburðurinn í lífi hennar. Hún var
stödd alein úti í sveitakirkjunni þeirra og var að leika
á orgel. Þá datt henni alt í einu í hug, að víst myndi
hún geta talað eða haldið ræðu eins og maður hennar.
Hún stóð á fætur og gekk upp í pontuná. Hún hugs-
aði sér að kirkjan væri full af fólki, haf af andlitum og
augum, sem öll horfðu upp til hennar. Og hún fór að
tala, hélt þrumandi ræðu og gagntók bæði sjálfa sig og
söfnuðinn af hugmyndafluginu og streymandi mælsk-
unni. Rjóð og heit gekk hún út úr kirkjunni. Nú vissi
hún að hún var mælsk!
Hún komst nú í kynni við margt stórmenni í stjórn-
málum og vísindum, eins og Thomas Scott, George
Lansbury, Charles Bradlaugh, Bernhard Shaw, William
Stead o. fl. Þetta eru með merkustu nöfnum ýmsra
stórmerkra andlegra hreyfinga á Bretlandi á þessum ár-
um. En Annie Besant svo að segja vex fram úr þeim
öllum. Og hún er alt af glæsilegasti faldurinn á öldunni.
Eftirtektavert er hvernig hún hverfur frá þessum mönn-
um og lífsstefnum. Ekki heyrast skammir eða bölbænir,
heldur eftirsjá og aðdáun. Allir þessir fyrnefndu menn
hafa hlaðið henni dýrlega lofkesti, kalla hana ofurmenni