Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Síða 22

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Síða 22
276 Lífsviðhorf guðspekinnar. IDUNN hina ófullkomnu mannlegu sál að ímynd þeirrar frum- myndar, sem guð geymir í huga sínum. Fyrirætlanir guðs eru svo dásamlegar, að hann þarf á sérhverju af oss að halda, á hvaða sviði sem sköpunar- hæfileikar vorir liggja. Sumar sálir eru sérstaklega vel til þess fallnar að verða heilagar. Þær eiga að leggja til hugsanir, tilfinningar og tilbeiðslu, hrifningu og písl- arvætti, sem vitni ber um náð og elsku guðs. Aðrar sálir hneigjast aftur á móti að vísindalegum rannsókn- um eða heimspekilegum heilabrotum. Er ætlast til að þær uppgötvi náttúrulögmálin og smíði heimspekikerfin. Hinar listrænu sálir eiga að leggja til Ijóð, myndastyttur og tónsmíðar. Þær eiga að skapa úr steini eða tónum, litum og hreyfingum, sem eiga að tákna dans guðanna. Það, sem ætlast er til að margir láti í té, bæði konur og karlar, er einkum elska til eiginkonu eða og eigin- manns, barna, foreldra og vina. Þessi elska á að koma fram í hugrekki, nærgætni og sjálfsafneitun. Hún á að koma í ljós í ýmsum smávægilegum atvikum daglega lífsins, í brosi eða handtaki, sem gefur öðrum kjark til þess, að láta ekki hugfallast, en halda örugt áfram að takmarkinu. Hver einasti maður verður að leggja til sinn skerf. Fyrirætlanir guðs geta ekki fullkomnast fyr en allir gera það með gleði. — Þannig sýnir guðspekin hvernig guðlegur löggjafi vakir yfir heiminum og rás viðburðanna, og að guðdómleg snilli breytir öllu í feg- urð að lokum. Hvort sem vér nefnum þessa uppsprettu alls guð eða eilíft lögmál, hvort sem vér samkvæmt skapgerð vorri snúum oss til þessarar uppsprettu sem föður eða sem eiskhuga, sem óumbreytanlegs náttúru- lögmáls eða eilífrar fegurðar-uppsprettu — þá er þó unt að greina eitt sameiginlegt einkenni, sem vér öll
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Iðunn : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.