Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Side 34
288
Annie Besant.
IÐUNN
ekki mikið í mikilmennið. En sú jafnaðarstefna, sem
bannfærir öll trúarbrögð, hefir andstygð dauðans fólgna
í hjarta sínu.
— Og sæði guðspekinnar féll í frjósama jörð. Annie
Besant fór að leita að höfundi »Launfræðinnar«, Helenu
Petrownu Blavatsky — H. P. B. Þær kyntust og Annie
Besant gekk í guðspekifélagið, sem H. P. B. og H. S.
Olcott höfðu stofnað í New-Vork 17. nóv. 1875. Árið
1893 fór hún alfarin til Adyar á Indlandi, þar sem er
aðalstöð guðspekinga og hefir hún síðan átt þar sitt
aðalheimili.
Undir eins og hún kom til Indlands, Iagði hún þegar
fram alla sína geysimiklu starfskrafta til að hjálpa Ind-
verjum, vekja þá af mókinu, safna þeim saman og segja
þeim hverjir þeir voru. Hún lærði sanskrít til þess að
geta sjálf lesið hin fornhelgu fræði Indverja. í fyrstu
lagði hún alt kapp á að eyða trúarbragðahatri milli
margra sértrúarflokka í landinu og varð mikið ágengt,
stöðvaði jafnvel blóðug trúarbragðastríð.
Þá snerist áhugi hennar að skólamálum Indverja.
Áður en landið komst undir yfirráð Breta, bjó þarna
einhver gagnmentaðasta og ríkasta þjóð heims, er stóð
föstum fótum á sinni glæsilegu þúsund ára fornmenn-
ingu og átti þjóðlega háskóla í hverjum skógi. Bretar
verða að eiga það, að þeir hafa kipt fótum undan þess-
ari merkilegu þjóðmenningu. Ollum gírugum auðvalds-
kúgurum er allstaðar illa við mentun þræla sinna. Undir
stjórn Breta urðu Indverjar í flokki með langsamlega
lakast mentuðu og fátækustu þjóðum jarðarinnar og
fornmenningin rann þeim undan fótum. Annie Ðesant
þekti gamla sannleikann þenna; að ósi skal á stemma.
Hún gat komið því ákvæði fram, að í skólunum skyldi
aftur tekin upp og kend gamla trúspekin indverska.