Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Blaðsíða 43
IÐUNN
Annie Besant.
297
ir. Þó þarf slíkt alls ekki að vera. Það er sjálfsagt ær-
ið nóg verkefni miklum mannkynsfræðara, að blása nýj-
um anda í gömlu trúarbrögðin, eða gera nútíðarmönn-
um þau aðgengileg. En miklar vonir eru nú reistar á
]. Krishnamurti.
Aðalboðskapur hans, sá sem hingað hefir borist, er
boðskapur gleðinnar, að við eigum að leggja alúð við
það að vera glöð, að hamingjan búi í brjósti hvers ein-
asta manns, að hamingja og fegurð sé fólgin í hverri
mannssál hvernig svo sem ytri aðstæður séu — og þetta
verður hver einstaklingur að finna í sjálfum sér,
»Þetta er ekkert nýtt«, munu menn segja. En hvað
var nýtt í boðskap Jesú Krists ?
Annie Besant hefir orðið að þola margskonar of-
sóknir um æfina fyrir brautryðjandastarf sitt, fangelsi,
spott og spé og allskonar háðungar. En ekki er ósenni-
legt, að það sé alt eins og barnaleikur í samanburði
við það, sem Krishnamurti mun fá að finna og heyra.
Það er ekki ósennilegt, að miklar deilur verði út af
honum um allan heim. Og víða munu nú notuð orð
eins og þessi: Falsspámenn munu upp koma og afvega-
leiða marga. Eða þessi: Vei yður þér endurbornu skrift-
lærðir og farisear, sem enn og aftur viljið lífláta Krist.
Þetta eru handhæg orð í stælum. En alstaðar þar
sem kærleikur fer með orð og ræður athöfn, þar er
mannkynsfræðarinn.
Sigurjón Jónsson.