Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Page 85

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Page 85
IÐUNN Biblía stjórnmálamanna. 339 alið. Og vér megum ekki gleyma því, að hann hafði fyrir augum markmið, sem var honum heilagt og hátt. Hann þráði að sjá Italíu sameinaða og erlenda ribbalda rekna úr landi. Bók sína endar hann með þessum orðum: Vfirráð ribbaldanna er andstygð í augum vor allra. — Ofsafenginn þjóðernissinni; merkilegt sambland draum- óra og raunhyggju; maður, sem þrátt fyrir öll slægvizku- ráð til annara, aldrei kunni að skara eld að eigin köku; skáld, sem vildi vasast í stjórnmálum, en varð að láta sér nægja að rita um þau bók; marglyndur hugsjóna- maður klæddur í kaldrana-gervi — alt þetta var Niccolo Machiavelli. Á. H. þýddi lauslega. Rúm og tími. II. Sólmyrkvinn. Skuggi tunglsins. Sólmyrkvar eru fátíðir og vekja ávalt athygli manna. Nú í vor, 29. júní, varð almyrkvi á sólu og hefir engum sólmyrkva verið slíkur gaumur gefinn. Myrkvi þessi hófst í Atlantshafi suðvestur af Bretlands- eyjum og gekk yfir Wales, England, Noreg, Lappland, Novaja Semlja, Síberíu, Aleutaeyjar og endaði austur í Kyrrahafi, en deildarmyrkvi varð um alla Norðurálfu, nokkuð af Austurálfu og Suðurálfu og víða um höf á norðurhveli jarðar. Stjarnfræðingar höfðu viðbúnað mikinn víða um Eng-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.