Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Side 94
348
Ritsjá.
• IÐUNN
annars: „Ræöur þessar flutti J. Krishnamurti viÖ eldana fundar-
kvöldin sex í Ommen í sumar. Las hann venjulega fyrst upp kvæði
eftir sjálfan sig og flutti svo ræöuna á eftir. Má segja að þær séu
upphaf boðskapar þess, sem hann kveðst vera sendur til að flytja
mannkyninu. . . . Bók þessi er það fyrsta, sem hægt er að dæma
hann eftir, því hún er það fyrsta, sem frá honum hefir komið,
síðan hann tók við fræðarastarfinu, að undanteknum örfáum tæki-
færisræðum". . . . Mörgum mun leika hugur á að kynnast þessum
merkilega höfundi. Hér er tækifæri. S. 7-
Kaupendur Iðunnar
hafa á þessu ári fengið tveim örkum meira
lesmál en undanfarin ár — 22 arkir (352 bls.)
í stað 20 arka (320 bls.) áður. StæUkun þessi
hefir vitanlega haft aukinn kostnað í för með
sér og er það nú undir vinum Iðunnar komið,
hvort hún getur orðið til frambúðar eða ekki.
Heitir nú Iðunn á þá að duga sér — í fyrsta
lagi með því, að standa í skilum, í öðru lagi
að útvega henni einn (eða fleiri) nýjan kaup-
anda hver. Með nokkrum hundruðum kaupenda
í viðbót gæti Iðunn fyllilega staðið 10 króna
tímaritunum á sporði um stærð og fjölbreytni
efnis, án þess að hækka í verði.
Nýir kaupendur — þeir, er þess óska, geta
fengið einn af eldri árg. í kaupbæti, eftir eigin
vali, enda hafi þeir þá greitt fyrsta árstillag sitt.
Iðunn kostar aðeins kr. 7,00 árg.
Gerist áskrifendur sem fyrst!