Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1934, Side 149
ÍÐUNN
Bækur.
143:
ar er prýðileg að frágangi, letur skýrt, prentvillur fáar-
og myndir margar og góðar. Eitt þykir mér þó að: skráin':
yfir heimildir þær, sem vísað er til víða í lesmálinu, er i
einu lagi aftaS't í bókinni; í staðinn fyrir að vera neðanmáls-
á viðeigandi blaðsíðu. Veit ég, að sumir telja þetta kost,
þeir, sem láta sig heimildaskrána engu varða, en hinum er
þetta óhagræði. Er þessa ekki getið hér af þvi, að það sé
nokkur höfuðgalli, heldur til þess að þeir, sem siðar kunna..
að semja slíkar bækur, viti, að sumum lesendum keinur
betur að allar athugasemdir við frásögnina í meginmálinu
séu sem næst þeim stað, sem þær eiga við, svo að fyrir-
hafnarlítið sé að kynna sér þær um leið og bókin er lesin..
I formála fyrir bókinni segir, að þess sé vænst, að hún
megi verða þeim, „er kynnast vilja sögu Hafnarfjarðar eða
einstökum atriðum hennar, til nokkurs gagns“. Þetta er
mælt af mikilli hæversku, því að hún hlýtur að verða þeimi
til mikils gagns. Þeir geta auk heldur ekki án hennar ver-
ið. Og þangað má sækja mikinn almennan sögufróðleik.
Um einn þátt í sögu Hafnarfjarðar er þó rit þetta ekki:
mikil heimild. Það er saga hinna pólitísku átaka á síðustu
árum eða áratugum. En sú saga á ekki heima í þessu riti.
Skemtileg gæti hún þó orðið, ef sá ritaði, sem kynni með
að fara. Er þessa fyrir því getið hér, að þarna bíður verk-
efni, sem ekki má dragast alt of lengi að sinna, liver sem
til þess vill verða, því misjafnra dóina má sá inaður vænta
sér fyrir verk sitt.
Mörgu þorpi og margri sveit hér á landi myndi þykja
sér bæði gagn og gaman að eiga sögu sína eins vel samda
og saga Hafnarfjarðar er. Og þakka mega fleiri en við.
Hafnfirðingar Sigurði meistara Skúlasyni fyrir dugnað hans .
og vandvirkni við samningu þessa prýðilega rits.
Ölafur Þ. Kristjánsson.
Þórbergur ÞórBarson: Alpjódamát'
0 g m áll e y sur. Bókadeild Menningar-
sjóðs. Rvik 1933.
Þórbergur Þórðarson er einn þeirra fáu Islendinga, sem
hafa kynt sér alþjóðamáls-hreyfinguna rækilega. Hann hefir
Imrt Esperanto til hlítar, ritað talsvert á því máli, setið
Ýms alþjóðaþing esperantista, haft bréfaskifti við menn.