Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1934, Blaðsíða 160
154 Bækur. iðunn
'er, að þær sögur, sem eru til bæði réttar og „rangar“, séu
prentaðar í þeim gerðum báðum.
Einar Guðmundsson.
Rauðskinna II. (Sögur og sagnir.) Safn-
að hefir Jón Thorarensen. Rvík 1933.
Fyrir nokkrum árum gaf séra Jón Thorarensen út 1.
hefti Rauðskinnu. Var mikið af því látið, en því miður hefir
Iðunni ekki borist það. Ganga má að því vísu, að þetta 2.
hefti verði ekki til að draga úr vinsældum þessa safns. Is-
lendingar eru ekki ginkeyptari fyrir öðrum bókmenlum en
þjóðsögum, hvort sem meta skal þeim til lofs eða lasts.
Alt, sem kemur út af því tagi, virðist eiga vísa athygli
þjóðarinnar. Og ekki spillir það, ef sögurnar eru góðar og
vel skráðar, en hvort tveggja þetta er óhætt að segja um
þjóðsögur séra Jóns. Af þeim, sem nú fást við að safna og
rita þjóðsögur, er hann að líkindum sá, er bezt kann tökin
.á að segja þær. Ber tvent til þess: I fyrsta lagi er hann
■ auðsjáanlega smekkmaður á mál og stíl meiri en alment
gerist. Og í öðru lagi sýnist hann hafa fengið i vöggugjöf
þenna dulrama og ósvikna íslenzka tón, sem til þess út-
heimtist að geta sagt vel slíkar sögur, blásið' í þær hinu
rétta Iífi og kyngi. Sögurnar í þessu hefti eru annars hver
annari betur sagðar og sumar mjög merkilegar, þótt hér
sé ekki rúm til að nefna dæmi þess. En ósviknastur er
þjóðsagnatónninn í ýmsum þeim sögum, er safnandi hefir
sjálfur fært í letur — sögum eins og Fölur er nú minn far.fi,
Hann gengur «ð med dögg, Nœturreiðin o. fl.
Á síðustu árum hefir hverju þjóðsagnasafninu af öðru
verið hleypt af stokkunum. Ekki verður Rauðskinna þeirra
:sízt, ef útgefandi heldur áfram sem horfir. Á. H.
Jónas Hallgrimsson: Úrvalsljód.
E. P. Briem. Rvík 1933.
Prýðileg lítil bók, prentuð á fallegan gulan pajipír, bundin
i brúnt alskinn, allur frágangur óvenju sinekklegur. Tíðk-
ast það mjög með öðrum þjóðum, að gefin séu út úrvals-
ljóð skálda í handhægum skraut-útgáfum, og lætur út-
gefandi þess getið, að fleiri slík ljóðasöfn muni á eftir fara,
æf þessu verði vel tekið. Parf varla að efa, að svo verði.