Kirkjuritið - 01.06.1963, Side 42
280
KIRKJURITIÐ
vottorð úr embættisbókum í sambandi við lijónavígslur,
skírnir og jarðarfarir. Hún sér líka um útgáfu safnaðarblaðs-
ins, fer í vitjanir til sjúkra, tekur þátt í æskulýðsstarfinu og
lætur sér ekkert óviðkomandi sem lieyrir til kristilegu starfi
innan Fagerborgarsafnaðar. Og það starf er margþætt. Það
er starf fyrir börnin, það er félagsskapur fyrir æskulýðinn,
sem lieitir: „Komdu inn fyrir klúbburinn“. Hann varð þann-
ig til, segir frk. Inger: „Til mín komu nokkrar ungar stúlk-
ur og báðu um heimilisföng aldraðs fólks í sókninni, sem
annað livort væri sjúkt eða einmana og þær gætu þá heiin-
sótt og gert eittbvað fyrir. Þær liöfðu fengið ábuga á safn-
aðarstarfinu og vildu fá að vera með til hjálpar á einlivern
liátt. Við erum tíu ungar stúlkur, sem förum í heimsóknir
um prestakallið“, segir frk. Inger, „og það liefur vakið gleði
og þakklæti meðal gamla fólksins, því að margir sitja ein-
mana lieima“.
Ég fer að bugleiða, livort ung kona mundi ekki henta eins
vel og karlmaður í meðbjálparastarfið yfirleitt. Ekki ætti
bún síður að geta laðað að sér unga sem aldna, leiðbeint
þeim, sem vildu taka þátt í safnaðarstarfinu, tekið að sér
unglingana og börnin og tekið þau með sér í kirkjuna, fá
unga fólkið til að bjálpa til við guðsþjónustuna, setja upp
númerin, útbýta sálmabókum til kirkjugesta, leiða aldrað
fólk til sætis, og veita því aðra aðstoð ef með þarf. Allir
vita, að í eðli sínu eru unglingarnir mjög bjálpfúsir. Á þeim
stendur ekki, ef þau fá rétta uppörfun og finna að þau geta
gert gagn og starfað Guði til dýrðar.
[Þess má geta að frú Elísabet Magnúsdóttir í BúlstuðarlilíiV var um
skeið meðhjálpari þar við kirkjuna. Ef til vill hafa fleiri konur verið
meðhjálparar hérlendis. — Ritstj.]
LEIÐRÉTTING
Slæm preiitvilla slæddist inn í síðasta hefti, þótt raunar iiggi liún í
augum uppi af samhenginu. A bls. 213, 9. lína að ofan, stendur: „íslands
hamingju verður allt að vopni“ í stað: „íslands óhamingju verður allt
að vopni. A bls. 211, 5. lína að neðan, stendur: landvistum í stað
langvistum. Aðrar villur mun auðvelt að lesu í málið.