Kirkjuritið - 01.07.1963, Blaðsíða 8
294
KIRKJURITIÐ
liolt í dag. Og vér lútiim helgri fortíð og blessum lieilaga fram-
tíð, sem Drottinn gefur. Og lieilög heit skulu goldin í Drottins
nafni. Vér heitum því Gissuri, að liér skuli í lifandi vitund
landsins barna verða helgur höfuðstaður Guðs kristni á Islandi.
Vér heitum því Þorláki, að liér skuli bent á liugsjón lielgaðs
lífs. Vér lieitum því Brynjólfi, að liér skuli krossinn tilbeðinn
og bænin vaka. Vér heitum því meistara Jóni, að hér skuli
Guðs orði þjónað og boðuð sú trú, „sem blessar og reisir þjóðir“.
Með slíkum heitum skal þessi kirkja vígð, þetta er bæn vor
í dag, bæn þín, íslenzka þjóð. Þú ert barn þess Skálholts, sem
var, og niðjar þínir skulu njóta þess Skálholts, sem verða mun.
Og Drottinn allsherjar segir: Ég mun veita heill á þessum stað.
Heill hljóti allir þeir, sem liingað sækja nú og síðar. Heill hljóti
göfugir gestir, forseti vor og ríkisstjórn og fulltrúar frændþjóða,
ailir, sem liér eru innan veggja og allir utan þeirra, sem taka
þátt í Iielgri athöfn heima liér og livarvetna. Heill hljóti hver,
sem gott hefur gjört og gjöra mun þessu húsi og stað. Heill og
blessun búi hér og breiðist liéðan út, ljós Drottins Jesú Krists,
að vér sjáum hans dýrð og hans verði dýrðin, liér og á öllum
stöðum, í dag og að eilífu.