Kirkjuritið - 01.07.1963, Blaðsíða 58
344
KIRKJURITIÐ
Nýskipun skólafrœSslunnar
Sunnudaginn 18. ágúst s. 1. birtist eftirtektarvert samtal í
Morgunblaðinu við dr. Wolfgang Edelstein, íslenzkan mann,
sem starfar við merka vísindastofnun í V.-Þýzkalandi Hafði
hann áður verið um skeið kennari við einn af róttækustu skól-
um álfunnar, Odenwaldsskólann í nánd við Heidelberg.
Aðalefni þeirra skoðana, sem dr. Edelstein lætur uppi er,
að nauðsyn beri til að breyta allmikið starfsháttum og náms-
skrám skólanna hérlendis. Taka upp ýms ný námsefni í sam-
ræmi við þróun margra nýrra vísindagreina og gera námið
einnig hagnýtara. Hafa kjörgreinir og leggja meiri rækt við
verknáinið en gert hefur verið Iiingað til. Allt mun þetta miða
í rétta átt og því fyrr, sem farið er meira inn á þessar leiðir,
því betra. Jafnframt verður að auka uppeldisáhrif skólanna:
glæða betur manngildishugsjón, fegurðarskin og samfélagsskiln-
ing nemendanna en nú er gert. Margt æskufólk er ófróðara um
Biblíuna og aðrar ágætustu perlur bókmenntanna en var nm
skeið. En alla varðar það livað mestu að vita livað liefur verið
liugsað fegurst og göfgast á jörðu.
Hugvísindin mega ekki dragast aftur úr raunvísindunum,
né vera skipað á óæðri bekk í skóhinum né hugum manna.
Er gott til þess að vita, að forystumenn fræðslumála liér á
landi liafa samkvæmt frásögn dr. Edelsteins, opinn hug fyrir
nýbreytni en vilja jafnframt gæta þess að varpa engu góðu
fyrir borð.
Nýstárlegur skóli
Rétt utan við Árósa á Jótlandi er risinn ný útgáfa af lýðliá-
skóla. Upphafsmaður lians heitir Hans Munck og kallar hann
Unghjónaskólann. Tilganginum er lýst á þessa lund: Skólinn
á að miða að því að rótfesta í heimilunum, homsteinum þjóð-
félagsins, þau menningarsjónarmið og þá friðhelgi persónu-
leikans, sem lýðræðið stendur og fellur með. Skólinn byggir
fræðslu sína á kristilegum grundvelli og leitast við að gera
sérbvern nemanda bæfan til að móta líf sitt í samræmi við
trú sína og yfirlýsingar. Á þann veg á æskan að verða fær uffl
að stofna lieimili, sem eru heilbrigðar frumur í þjóðlíkaman-
um.