Kirkjuritið - 01.07.1963, Blaðsíða 90
KIItKJURITIÐ
376
orgeliS olckar skuldlaust. Af þeim áfangastað getum við' nú liorft vonglöð
fram á við' til enn meiri sóknar. Eg vil því þakka þér af öllu hjarta fyrir
hönd okkar allra hér í kvöld, já, fyrir hönd safnaðarins alls, þitt farsæla
hálfrar aldar starf og bið þess Guð, að við megum enn um sinii fá að
slanda saman og haldast í hendur í baráttunni fyrir ríki Guðs á jörðu.
(Að þessu ávarpi loknu færði sóknarpresturinn Eyþóri áritað eintak af
viðhafnarútgáfu Menningarsjóðs á Passíusálinunum sem þakklailisvoll
safnaðarins fyrir hálfrar aldar starf).
INNLENDAR FRÉTTIR
Aldarafmœlis ísaf jarSarkirkju var minnzt með hátíðlegri messugjörð þar
11. ágúst s. I. Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup prédikaði ásaint sóknar-
prestinum, Sigurði prófasti Kristjánssyni. Auk þess voru viðstaddir 8 Vest-
fjarðarprestar. Fjöldi fólks sótti athöfn þessa. Sunnukórinn söng undir
stjórn Ragnars H. Ragnars og fyrrv. organleikara kirkjunnar, Jónasar
Tómassonar. Gunnlaugur Jónsson söng einsöng. Afhjúpuð var minningar-
lafla um séra Hálfdán Einarsson, sem lét reisa kirkjuna. Gerði það einn
afkomandi hans, frú Kristín Þórarinsdóttir. Frú Guðrúnu Pétursdóttur,
fyrrv. biskupsfrú var sérstaklega boðið til vígslunnar. Flutti hún kveðjur
þeirra ísfirðinga, sem nú eru búsettir í Reykjavík, og kvað þá hafa ákveðið
að gefa kirkjunni útskorinn prédikunarstól. Vígslubiskup afhenti fagra
silfurkönnu frá frú Agnesi Jóhannesdóttur í Reykjavík. Þá hafa tveir mynd-
skreyttir gluggar verið gefnir kirkjunni. Er annar gefinn af ónafngreind-
um hjónum til minningar uiii Eðvard Ásmundsson kaupm. og konu hans
Sigríði Jónsdóttur, Isafirði og Pál Jónsson bónda á Laugabóli og konu
lians Ólöfu Jónsdóttir. Hinn gluggann gaf Kvenfélag kirkjunnar ásanit
altarisklæði, flaueli á knébeð. Ennfremur 20 sálmahækiir og gestabók.
Börn Steins Sigurðssonar og Ólafar Guðmundsdóttur gáfu fagran liökul tiI
minningar uin foreldra sína. Kvenfélagið Ósk gaf altarisdúk, sem f>'u
María Jónsdóttir frá Kirkjubæ hafði saumað. Systkinin Ágústa, Ágúst og
Einar Hálfdánarhörn (sonarsonarhörn Hálfdánar Einarssonar, prófasts)
gáfu 28 sáhuabækur og peningagjöf í píanósjóð. Friðrik Bjarnason mál-
arameistari gaf alla niálningii á kirkjuna að utan.
Formaður sóknarnefndar er Einar B. Ingvarsson útihúsljóri og lief-
ur hann heitt sér fyrir umbótum og skreytingu á kirkjugarðinum. Fjöl-
menn kaffidrykkja var um kvöldið' í tilefni afmælisins og margar ræður
fluttar og einnig suiigið.
Reistur hefur verið minnisvariH um Sigtrygg prófast Guðlaugsson og
frú Hjaltlinu Guðjónsdóttur á Núpi. Atliöfn þessi fór fram 4. ágúst s. I-
Hófst liún með niessu. Séra Eiríkur Eiríksson, þjóðgarðsvörð'ur prédikaði,