Kirkjuritið - 01.07.1963, Blaðsíða 51
Séra Jón Au&uns, dómprófaslur'.
Henri Dunant
stofnandi liauSa Krossins
Vegna aldarafmælis Alþjóða Rauða Krossins er stofnanda
lxans minnzt urn víða veröld á þessu ári, sem eins af velgjörða-
mönnum mannkynsins.
Jean Henri Dunant fæddist í Genf 8. maí 1828. Hann var
elztur fimm systkina og fæddur af efnaðri, svissneskri ætt. Hafði
faðir lians og forfeður gegnt liáum embæltum og notið mik-
illar virðingar í heimalandi sínu. Faðir lians átti sæti í borgar-
ráði Genfar og vann að líknarmálum. Móðir hans var gáfukona
og trúkona mikil, og fjölskyldan var Kalvínstrúarfólk, sem
mikla stund lagði á grandvart líferni og góðgjörðastarf.
A unga ahlri las Henri Dunant hækur mannvina og lærði
að dá þá, sem að mannúðarmálum unnu. Hann var um skeið
ferðafulltrúi fyrir K.F.U.M. og sýndi í því starfi fráhæra liæfi-
leika til að telja menn á sitt mál og kveikja í þeim áliuga fyrir
baráttumálum sínum.
Hann lærði bankafræði og gerðist ungur lilutliafi í mjög
arðvænlegum verzlunarrekstri. Hann var glæsimenni, fyrir-
mannlegur í framkomu, gáfaður og liafði gnægð fjár milli
handa.
Árið 1859 lagði hann leið sína til ítalska hæjarins Castiglione
til þess að ná þar fundum Napóleons 111. Frakkakeisara, sem
þar var staddur með franska lierinn. I næsta nágrenni geisaði
hin mannskæða orusta við Solferino, einhver hlóðugasta orusta,
sem fram að þeim tíma liafði verið liáð.
300 þús. manna herir börðust. Um það bil 40 þúsundir lágu
þar deyjandi og særðar í valnum. Þúsundum þjáðra og deyjandi
hermanna var komið inn í hæinn Castiglione, þótt um hjúkr-
un eða læknislijálp væri naumast að ræða. Hvert liús var fullt
22