Kirkjuritið - 01.07.1963, Blaðsíða 86
Reykhólakirkja vígð
Sunnudaginn 8. september s. 1. vígði biskupinu liina nýju
kirkju að Reykhólum á Barðaströnd. Mikið fjölmenni var, [>•
á m. 10 prestar. Staðarprestur, Þórarinn Þór, prédikaði svo
sem venja er. 1 fjarveru organistans, frú Ólínu Jónsdóttur,
stjórnaði Jón Isleifsson, formaður Kirkjukórasambandsins, safn-
aðarsöngnum. Vígður var nýr skírnarfontur, sem Ragnheiður
Hákonardóttir frá Reykhólum hafði gefið. En skírnarskálin,
sem er úr silfri, var gjöf barna þeirra Hákonar Magnússonar,
fyrrv. bónda á Reykbólum og konu lians Arndísar Bjarnadótt-
ur og barna þeirra Jónasar Sveinssonar og Kristínar Guð-
mundsdóttur, sem fyrr bjuggu á Borg í Reykbólasveit.
Breiðfirðingafélagið í Reykjavík gaf prédikunarstól, sem er
í hörpulíki. Kaupfélag Króksfjarðar gaf málningu á kirkjuna
utanverða. Kvenfélagið Liljan flosteppi á kórgólf og dregil a
gang. Þá voru gefnir tveir kaleikar, patína og oblátudósir,
tvennir messuskriiðar, altariskross og ljósastjakar, bikarar,
Guðbrandsbiblía og 30 sálmabækur. Einnig peningagjafir, eink-
um í Mæðrasjóð, sem tengdur er nafni Þóru í Skógum, móður
séra Matthíasar. Er blutverk þessa sjóðs að stuðla að sem mestn
skreytingu kirkjunnar.
Kirkjan er teiknuð á skrifstofu búsameistara ríkisins. Sveinn
Kjarval réði gerð innri búnaðar. Yfirsmiðir voru Magnus
Skúlason úr Vogi á Vatnsleysuströnd og Gísli Ingimundarsou
úr Saurbæ í Dalasýslu. Einar Stefánsson, rafvirkjameistarx a
Reykliólum, annaðist raflagnir. Tekur kirkjan tæp 200 nxanns
í sæti, ef bún er þéttsetin, og kostaöi liðlega bálfa aðra rnillj011
króna.
Framkvæmdastjóri byggingarinnar var fyrst Sigurður Elíus-
son, tilraunastjóri, síðar Ingi Garðar Sigurðsson, tilraunastjori-