Kirkjuritið - 01.07.1963, Síða 71
KIRKJURITIÐ
357
saman vift tilsvarandi íslenzk orð. Hér er ekki tími til að rekja
þaS efni nánar. En ég fæ ekki betnr séð en að einnig í því efni
fari dr. Jón rétt með staðreyndir.
Og árin liðu. Ofan á skólastarf og kirkjulega þjónustu í Bæ
og nágrenni liefur Rúðólfur orðið að ferðast um og líta til
með nemendum sínum, er komnir voru út í starfið. Hann var
nú hinn mikli trúarleiðtogi á akri íslenzkrar kristni. Álirifa
lians gætti og í fjarlægari héröðum.
Og svo kom árið 1042. Tíðindi bárust til landsins þess efnis,
að HörÖa-Knútur konungur Dana og Engla væri látinn og
að engilsaxneskur konungur, Játvarður hinn góði, hefði tekið
við völdum á Englandi. ÍJtlegð Rúðólfs biskups var því á enda.
Nú mátti hann koma heim til ættjarðarinnar. Frændi hans og
vinur var orðinn konungur Englands. Hvílík fagnaðartíðindi
eftir nær 30 ára útlegð. Enskir samstarfsmenn Rúðólfs vildu
nú án efa komast heim sem fyrst. Án efa leyfði hann þeim að
fara. En sjálfur kaus hann að vera kyrr. Hann gat ekki yfirgefið
Island frá hálfnuðu verki. Og li ann sat kyrr enn um 7 ára bil.
f*á var lagt af stað heim, enda elli og þreyta orðin nærgeng
þessum þrotlaust starfandi manni. Á öndverðu ári 1050, er
liann kominn til Englands. Konungurinn, vinur lians og frændi,
fagnar heimkomnum ættingja, er ekki hefur séð ættjörðina í
rúmlega 35 ár. Á vitringaþingi (witenagemot) í Lundúnum
höldnu á miðföstu 1050 skipaði konungur í nokkur æðstu
hirkjuleg emhætti Englands. Róbert Lundúnabiskup varð erki-
hiskup af Kantaraborg og Sperliafoc ábóti í liinu víðkunna
klauslri í Abingdon varð Lundúnabiskup. Ábótaeinbættið í
Abingdon gaf konungur Rúðólfi, hinum heimkomna frænda
sínum og vini. Þangað var friðsælt að koma og dvelja. Munk-
arnir fagna hinum kunna trúboða, er liefur varið næstum allri
starfsævi sinni til að bera Ijós kristins siðar um lieiðin lönd
norðursins. Þeir líta á hann sem lielgan mann. Það var líka
gott að koma heim og fá að síðustu að starfa á helgum reit
ættjarðarinnar. En Islandi liinni norrænu byggð var ekki
gleymt. Bænir þessa aldraða Islandsvinar umvöfðu gróður-
reitina í Borgarfirði og öðrum byggðum Islands helgum friði
°g náð. En nú liallaði undan fæti. Heilsa og kraftar voru á
þrotum. Árið 1052 andaðist Rúðólfur biskup. Einn af mestu