Jörð - 01.11.1941, Blaðsíða 29
stjórnaði mestu líknarstarfseminni, sem framkvæmd liefir
verið í veröldinni — og manninn, seni fórnaði lífi sínu, til
þess að l)jarga lífi keppinauts síns, sem liafði reynzt hon-
um illa.
SÍÐAN INNRÁSIN var gerð i Noreg fyrir rúmu liálfu
öðru ári, liafa þær þagnað raddirnar hérna, sem vildu
hafa skóinn niður af Norðmönnum. Nú tala víst allir um
Norðmenn m,eð aðdáun, nema þeir, sem elska Hitler.
En engum skyldi detta i hug, að það, sem Norðmenn hafa
sýnt síðan 9. Aprii 1940, sé nein nýsköpun. Það var allt
til fyrir 9. Apríl. Gamall erfðagóss, sem ekki gat ryðgað
vegna þess, að það var úr silfri og gulli.
Norðmenn hafa ekki lært ættjarðarást og þjóðerniskennd
eins og skólanámsgrein, og ekki er hún heldur átrúnaður.
Hún er meðfædd — sogin inn með móðurmjólkinni. Barna-
skrúðgangan 17. Maí er engin leiksýning; hún er líf. Og
þegar Norðmen tala um sjálfstæði og frelsi, þá er það ekki
hjal, lieldur alvara.
Og hefir allt af verið. En nú hefir þeim gefizt tækifæri, til
að sanna, að það er alvara. „Der finns noe, der er værre
en döden,“ sögðu þeir stundum í fyrra. Og þeir hafa stað-
ið við það. Þeir eru orðnir talsvert margir, sem hat'a kos-
ið dauðann, því að þeir vildu ekki kjósa það, sem verra
var: föðurlandssvikin.
NORÐMENN OG ÚTVARPIÐ
Frh. frá bls. 452.
ÁVÖRP FRÆGRA MANNA í WRUL-ÚTVARRINU
TIL NORÐMANNA.
PEARL BUCK: ... .Vér Ameríkumenn verðum að játa það, og ger-
um ])að glaðir og hryggir í senn, að vér höfum stórhagnast
á viðgangi ofbeldisstefnunnar í Evrópu. Því hingað hafa þeir kom-
ið, hinir mörgu ágætustu spekingar Norðurálfunnar, sem ofbeldis-
stefnan hefir flæmt þaðan. Aldrei í sögu mannkynsins hygg ég, að
svo margt af úrvali andans manna hafi verið saman komið í einu
landi sem nú í Bandarikjunum. En engir þeirra eru oss meiri
Frh. á bls. 477.
Jönn
4C3