Jörð - 01.11.1941, Blaðsíða 107
TIL LESENDANNA
r
IDAG er 24. Nóvember og er þá búið að lesa tvær prófarkir af
öUu þessu hefti og búið að skipa þvi öllu í blaðsiður. Það er
því fullt útlit til, hamli ekki pappírsvandræði, að spádómsgáfa
vor, að því er snertir útkomutíma ritsins, sé í örri framför. Siðasta
hefti kom út seinast í Október. Þetta hefti kemur væntanlega út
snemma í Desember. Með sömu framför ætti að mega vænta
næsta heftis um áramótin. Og þegar þess er gætt, að meðalstærð
þessara þriggja hefta verður rúmlega hundrað siður, þá ætti ekki
að vera nein fjarstæða að gera sér von um, að kleift reynist á
næsta ári að láta 64-bls.-hefti koma út mánaðarlega. Þér sjáið, kæru
lesendur, að vér seiglumst, líkt og Bretinn, og sígum á — segir ekki
máltækið „sígandi lukka er bezt“? Hins vegar dettur oss ekki í
hug að draga fjöður yfir það, að vér verðum — og höfum frá upp-
hafi orðið —- að neyta allrar orku, til þess árangurs í útgáfunni,
sem orðinn er, — en ef þér, kærir lesendur, eruð oss saintaka:
1) innið greiðslur yðar vinsamlega og greiðlega af hendi, 2) látið
oss tafarlaust vita, ef þér flytjið búferlum eða verðið fyrir vanskil-
um — og 3) setjið yður það raunverulega að útvega oss, hver um
sig, einn nýjan áskrifanda------þá er yður alveg óhætt að full-
treysta þvi, að ritið kemur ekki aðeins reglulega út 10 mánuði næsta
árs i 64 bls. heftum, heldur verður enn betur vandað til þess, en
verið hefir. Þvi sannleikurinn er sá, að vegna erfiðs fjárhags hefir
ritstjórinn allt of mörgum störfum að gegna við útgáfuna og kemst
ekki til þess að sinna ritstjórninni, eins og hann hefði viljað. Og
skal þó alls ekki dregið úr þeirri viðurkenningu, sem JÖRÐ hefir
notið þrátt fyrir þetta. Vér lofum yður meiru, kæru lesendur. Ef
þau þrjú skilyrði, sem hér að ofan getur, verða raunverulega nokk-
urn veginn uppfyllt, þá skal JÖRÐ stækka upp í 80 bls. hefti —
800 blaðsíður á ári. Hún er þegar orðin stærsta timarit landsins;
með þessu hefti er árgangurinn orðinn 540 blaðsíður. Með 800 blað-
siðum yrði hún áhrifaafl i menningarbaráttu þjóðarinnar, er væri
alveg ómetanlegt á þessum örlagatíma. Þetta er vel hægt, ef fólkið
vill trúa því og haga sér samkvæmt því og uppfylla skilyrðin þrjú.
3. OG 4. HEFTI þessa árgangs liafa að meira eða minna leyti
verið lielguð ákveðnum og stórum málefnaflokkum, sem ástæða
var til, að þjóðin beindi atliygli sinni að með krafti. Næsta
hefti verður algerlega almenns efnis, eins og JÖRÐ var áður. Og
þegar heftin verða smærri (um leið og þau verða fleiri i árgang-
inum), þá verður undantekningarlítið haldið sig við hin ahnennu
sjónarmið. Efnisval þeirra verður í aðalatriðum sem liér segir:
jörð XLIX