Jörð - 01.11.1941, Blaðsíða 53
æskulýðurinn, sem hafa forystuna. Það eru börnin, sem
herða foreldra sína upp, ef þeir eru veilir fyrir, en ekki
foreldrarnir, sem beina hörnum sínum af villigötum.
Mótstaðan lairtist í því, að það er algerlega gengið fram
hjá Þjóðverjum — þeim er sýnd lítilsvirðing og þeim
er ekki vært innan um góða Norðmenn. Kvenfólkið sýn-
ir því miður ekki alltaf nægilegt mótstöðuafl gegn hin-
um glæsilegu þýzku liðsforingjum, — en slíkum stúlkum
er ekki gleymt, og þær munu fá makleg málagjöld. Áróð-
ursræðum Þjóðverja, leikhúss- og kvikmyndasýningum
þeirra er ekki sinnt, fremur en það væri ekki til. Við
„Hitler Jugend“-sýninguna í Osló fundu börnin sjálf upp
á því að gera skólaverkfall.
Að skemmdarverkum kveður nokkuð og bönnuð blöð
fara um allt og koma eins reglulega út og þau, sem levfð
eru. Agæt fréttastarfsemi er rekin í landinu, og ég lieyrði
starfsmann í State Department í Washington segja, að
norska leynifréttastarfsemin væri sú hezta í lieiminum.
Það lítur illa út með vistir í Noregi. Enn eru engin stór-
vandræði dunin yfir, en veturinn verður eflaust örðugur.
Fjölskylda mín, sem flýði frá Noregi í Aprílmánuði síð-
astliðnum, hragðaði þrisvar ket milli Jóla og Páska, vegna
greiðvikni góðra vina. Litla dóttir mín lýsti morgunverði
sínum þannig, að liann hefði verið sag, lýsi og næpusúpa.
En fólk kvartar ekki, það hlær og svarar lijálparnefnd-
inni: „Sendið ekkert enn, við skulum sýna Þjóðverjun-
um, að við getum soltið lengur en þeir.“ — Annað mál
er það, að sá tími getur komið, að flytja þurfi vistir heim.
— ef til vill verður það í vetur. —
Framlög til leynilegra sjóða til styrktar stéttarbræðrum,
sem ofsóttir eru, eru rífleg frá öllum stéttum, — og ef
þetta hugarfar helzt með norsku þjóðinni, verður Nor-
egur það land, sem hezt verður að búa i, þegar stríðinu
er lokið.
Nýskipun eftir þýzkri fyrirmynd tel ég útilokaða; fólk-
ið léti heldur flá sig.
Jönn
5,—9.—1941.
487