Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Page 4
4
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Sjómannadagsblaðið
kemur út á Sjómannadaginn ár hvert
og er sent í pósti til áskrifenda.
Áskrift í síma 5538465
Verð kr. 700.00-
ÚTGEFANDI:
Sjómannadagsráð
Hrafnistu DAS Laugarási,
104 Reykjavík
RITSTJÓRAR:
Atli Magnússon
Garöar Þorsteinsson ábm.
RITNEFND:
Hálfdan Henrysson
Sigurður Þ. Arnason
Vilmundur Víðir Sigurðsson
PRENTVINNSLA:
Prentsmiðjan Grafík hf.
UÓSMYNDÁ KÁPU:
Rafn Olafsson starfsmaður
Hafrannsóknastofnunar.
AUGLÝSINGAR:
Jón Kr. Gunnarsson
Avarp
f ár fagnar Sjómannadagurinn 60 ára afmæli sínu og í tilefni af því er Sjó-
mannadagsblaðið að þessu sinni nokkru veglegra en vant er og fer vel á því.
Undirbúningurinn að því að fagna þessum tímamótum hefur staðið lengi og
þegar má líta tvenn minningamörk helguð sjómannastéttinni sem Sjó-
mannadagurinn í Reykjavík og Hafnarfirði hefur látið reisa í tilefni afmæl-
isins: Þar er annars vegar átt við minningaröldurnar í Fossvogskirkjugarði
og styttuna ”Horft til hafs” við Reykjavíkurhöfn, en um bæði þessi mann-
virki hefur verið fjallað hér í blaðinu. Þá munu hátfðarhöld Sjómannadags-
ins að þessu sinni bera þess glögg merki að merkisáfanga er minnst.
Víða er borið niður í efnisvali blaðsins. Sem vera ber eru Hrafnistuheim-
ilin heimsótt og rætt við formann Sjómannadagsráðs um það sem unnist
hefur og fram undan er. Menntunarmálum sjómanna eru gerð ítarleg skil
með viðtölum við skólameistara Sjómannaskóla fslands, en þegar menntun-
armálin eru annars vegar fer ekki hjá að umræðan um hús Sjómannaskólans
og stofnun Hollvinasamtaka Sjómannaskóla fslands blandist þeirri umræðu.
Eru og þætti Hollvinasamtakanna gerð verðug skil hér. Miklar breytingar
hafa orðið hin síðari árin í vitamálum og mál til komið að fjallað yrði um í
hverju þær helst eru fólgnar, um leið og við minnumst fyrri tíma með veg-
legu viðtali við einn kunnasta vitavörð landsins. Slysavarnafélag Islands
fagnar merkisafmæli í ár eins og Sjómannadagurinn og þess er minnst með
viðtali við forseta félagsins, enda gömul og traust tengsl í milli þessara
tveggja öflugu samtaka. Að vanda höfum við svo leitað til ýmissa cldri sjó-
manna sem rifja upp þætti úr reynslu sinni á þessum síðum, enda hefur eitt
meginmarkmið blaðsins frá öndverðu verið að halda slíkum fróðleik til
haga og forða honum frá að lenda í glatkistunni.
Að endingu leyfir blaðið sér fyrir hönd Sjómannadagsins í Reykjavík og
Hafnarfirði að óska öllum íslenskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til
hamingju á merkisafmæli Sjómannadagsins og árnar þeim heilla og far-
sældar.
Atli Magnússon
Fulltrúaráð Sjómannadagsins 1998
í Reykjavík og Hafnarfirði
Skipstjóra- og stýrimannafélagiA Alclan:
Sigurður Óskarsson Guðmundur Ibsen
Vélstjórafclag íslands:
Jón Guðmundsson
Sveinn A Sigurðsson
Dantel G. Guðmundsson
Ásgeir Guðnason
Sjómannafélag Reykjavíkur:
Guðmundur HaUvarðsson
Erling R. Guðmundsson
Skjöldur Þorgrímsson '
Jónas Garðarsson
Birgir H. Bjtírgvinsson
Skipstjóra- og stýrimannafélag Islands:
Sigurður Steinar Ketilsson
Guðlaugur Gíslason
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Kári:
Þórhallur Hálfdánarson
Ingvi Einarsson
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Ægir:
Sigurjón Stefánsson
Sigurður Hjálmarsson
Félag íslenskra loftskcytamanna:
Ólafur K. Bjtírnsson
Reynir Björnsson
Sjómannafélag Hafnarfjarðar:
Óskar Vigfússon
Eysteinn Guðlaugsson
Matsveinafélag Islands:
Skúli Einarsson
Einar Jóhannsson
Félag Bryta:
Rafn Sigurðsson
Kári Halldórsson
Stjórn Sjómannadagsins 1998:
Formaður:
Guðmundur Hallvarðssön
Varaformaður:
Guðmundur Ibsen
Ritari:
Óskar Vigfússon
Hálfdán Henrýsson
Varagjaldkeri:
Daníel Guðmundsson
Ólafur K. Bjtírnsson starfar með stjórninni
Varamenn I stjórn:
Eysteinn Guðlaugsson
Ólafur K. Björnsson
Kristján Sveinsson