Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Blaðsíða 114

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Blaðsíða 114
114 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ komið niður í algjört lágmark og ekki hægt að fara með þetta neðar. En hins vegar er inni í lögunum reikniregla sem gerir það að verkum að fari menn fram yfir ákveðinn áætlaðan afla, sem ákvarðaður er í upphafi árs, þá fækk- ar dögunum í hlutfalli við umfram- keyrsluna árið á eftir. Með þetta erum við ekki par hressir og viljum að þessu sé breytt. Við teljum líka að bæði fiskveiðikerfið og fiskistofnarn- ir þoli einhverja smásveigju í þessu efni, enda mun annað eins fara fyrir borð einhvers staðar. Því viljum við fá fram ákveðinn lágmarksfjölda sókn- ardaga, og fyrir því verður barist.“ Bætt tryggingakjör „Eitt af því sem unnið er að eru tryggingamál smábátaeigenda. Á síð- asta ári komum við á samningi í milli erlends tyggingaraðila og íslenskra tryggingamiðlara. Með þessum samn- ingi lækkuðu iðgjöld okkar félags- manna umtalsvert, svo ekki sé meira sagt, og hyggjumst sækja á dýpri mið í þessum málum. I fyrra voru það ein- göngu bátarnir sem þessar umbætur náðu til, en nú bætast við slysatrygg- ing og vonandi í framtíðinni aðrar tryggingar sem smábátaútvegurinn þarfnast. Skilmálarnir eru í sjálfu sér þeir sömu og við njótum hjá íslensku tryggingafélögunum, en iðgjöldin hafa verið langtum hagstæðari. Okkur hafði verið lofað umbótum, en við það var aldrei staðið og þess vegna fórum við út í þá vinnu að leita sam- starfs við erlenda aðila. Það er ánægjulegt að verða vitni að því að þetta hefur orðið til þess að íslensku félögin eru nú að fikra sig í sömu átt. Einhver segði sjálfsagt að þetta sýndi kosti samkeppninnar! En hvað um það, þá sýnir þetta hverju hægt er að koma til leiðar með samtakamættin- um!” Skapa þrisvar sinnum meiri atvinnu miðað við aflamagn „Ég minntist á hve áhugasamir fé- lagsmenn okkar eru um málefni sín. Dæmi um það er að hér á skrifstofu Landsambands smábátaeigenda, er ekki mikill „friður“ — ef menn skil- greina „frið“ þannig að í því felist að hvorki þurfi að lyfta símtólinu sé taka á móti mönnum. Einhvern tíma vor- um við að dunda við að reikna út hve mörg símtöl við að meðaltali ættum hérna. Þótt ég muni ekki í andartakinu nákvæma tölu, þá mun okkur hafa tal- ist til að símtöl á hverjum degi væru á bilinu 60 til 80! En þá er aðeins átt við símtöl að jafnaði, því suma daga, þeg- ar eitthvað sérstakt er um að vera, "kviknar hér í öllu”, ef ég má orða það svo. Þannig er óvenju rólegt í dag, en undanfarna daga hafa verið linnulausar hringingar vegna grá- sleppumannanna. Svo lítur fjöldi manns við hjá okkur, og því fögnum við. Þá bjóðum við mönnum inn á kaffistofuna og heyrum hvað þeiin býr í brjósti. Þetta er eitt af því sem gefur þessu gildi. Ég vil líka koma að því hvaða þýð- ingu smábátaflotinn hefur fyrir at- vinnulífið í landi okkar. Miðað við að 1300 til 1400 bátar eru á skrá hjá okk- ur og við gerum ráð fyrir að 1100 til 1200 af þeim séu virkir, þá er til dæm- is hver ársbátur að skapa atvinnu fyr- ir heila fjölskyldu og oft tvær fjöl- skyldur. Þannig er ljóst að við erum mikilvægur hlekkur í atvinnusköpun. Hlutfallslega stunda margir línuveiði og línan krefst mikils mannafla. Þar bætum við enn um betur Þegar tvíhöfðanefndin var að störf- um var Andri Teitsson, starfsmaður nefndarinnar, fenginn til þess að kanna hve mikið magn ísfisktogari annars vegar og smábátur hins vegar þyrftu að veiða til þess að skapa manni heilsárs atvinnu. Þetta var árið 1993. Við fögnuðum að þessi könnun var gerð, enda varð niðurstaðan lík því sem við höfðum sagt: Smábátarn- ir sköpuðu þrisvar sinnum meiri at- vinnu en stóru skipin! Þessu höfum við að sjálfsögðu haldið dyggilega á lofti.“ Ættu að fara að breyta fram- komu sinni „En þetta kemur ekki í veg fyrir — og það vil ég leggja áherslu á — að ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að við eigum að nota allar tegundir af skipum við fiskveiðar. Ég heyri það að vísu frá sumum minna félaga að réttast væri að útrýma öllum fiski- skipum öðrum en trillunum. En það er vægast sagt ekki annað en hreinrækt- uð þröngsýni: Fiskveiðar eru í eðli sínu þannig að við þær þarf að nota allar tegundir skipa. Hins vegar er ástæða þess að svo skörp skil hafa skapast á milli smábát- anna annars vegar og stórskipflotans hins vegar, sú framkoma sem ýmsir höfðingjar hafa sýnt trillukörlunum og samtökum okkar. Með því hafa þeir beinlínis boðið því heim að oft á tíðum ríkir hreinræktað stríðsástand. Framkoma margra stórútgerðarmanna hefur einkennst af hroka og lítilsvirð- ingu, en þeir þyrftu nú að fara að átta sig á því að það gæti reynst þeim dýr- keypt. Alþjóðumræðan er nefnilega að snúast þessum aðilum mjög í óhag — en íslenskir stórútgerðarmenn eru ekki þeir einu sem koma fram með þessum hætti við strandveiðimenn og eigendur minni báta. Þeim er því ef til vill betra að fara að tala við okkur eins og menn. Umhverfissamtökin hafa þegar áttað sig á að þessi klofn- ingur er kjörinn til þess að valda al- gjörri sundrungu í sjávarútveginum. Við sækjumst ekki eftir samúð um- hverfissinna, hvorki hérlendis sem er- lendis. I augum mínum geta afskipti þeirra af fiskveiðimálum reynst stór- hættuleg.“ Alþjóðasamtök strandveiði- manna — nýtt afl ”Þetta leiðir hugann að því að Landssamband smábátaeigenda hefur lengi haft áhuga á að færa út kvíarnar í félagsmálum og það á alþjóðavett- vangi. Ég hef verið að koma á sam- böndum við starfsbræður okkar hér í nágrannalöndunum, meðal annars með það í huga að stofna samtök strandveiðimanna í Norður-Atlants- hafi. Fyrir liggur samþykkt tveggja aðalfunda okkar í þá veru að keppt skuli að þessu. Þetta starf er nú á loka- stigi, en hefur lítillega tafist og réði því náskylt málefni, sem gefa þurfti tíma: Þar var um að ræða ráðstefnu niðri á Indlandi í nóvember sl., en á henni voru stofnuð Alþjóðasamtök strand- veiðimanna og fiskverkafólks með fulltrúum 32 þjóða. Ráðstefnan var haldin í Nýju Dehlí og tók ég þátt í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.