Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Blaðsíða 110

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Blaðsíða 110
110 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Hér standa þau við afmœlisfána SVFI Esther Guðmundsdóttir framkvœmda- stjóri og Gunnar Tómasson forseti. (Ljósm.: Sjómdbl. AM) hefur þessi aðstaða komið að iniklu gagni, ekki síst hafa menn iðulega getað kallað þaðan eftir aðstoð, því í flestum skýlunum eru talstöðvar. Slík tilvik eru ekki alltaf fréttaefni. En víst veltum við því fyrir okkur hvar skýli skuli vera og hvar þarf að koma upp skýlum, stundum með því að flytja skýli. En gjarna verður það að tilfinn- ingamáli, sem skiljanlegt er, ef fjar- læga skal skýli, en þetta reynir nefnd sú sem sér um málefni skýlanna að vega og meta.“ Öflugt starf bjögunarsveit- anna og slysavarnadeildanna „I SVFI eru nú um 18 þúsund manns. Björgunarsveitir þess eru um 90 talsins og slysavarnadeildir nokkru fleiri. Þá er að nefna unglingadeild- irnar, en þær eru um 40. Björgunarsveitirnar eru dreifðar allt í kringum landið. Þær sinna björg- unarstörfum á hverjum stað fyrir sig og eru flestar staðsettar úti við strönd- ina, en margar eru þó inni til landsins. Margar björgunarsveitir hafa skil- greint sig sem sjóbjörgunarsveitir en aðrar sem landbjörgunarsveitir, en flestar skilgreina sig þó sem bæði sjó- og landbjörgunarsveitir. Af því leiðir að þær þurfa að vera mjög vel útbún- ar til þess að geta sinnt þeim verkefn- um sem að höndum kann að bera og þurfa að koma sér upp fjölþættum og dýrum búnaði. Fjár til kaupa á honum hafa þær fyrst og fremst aflað sér með flugeldasölu og öðrum fjáraflaleiðum, en auk þess hefur félagssjóður SVFI styrkt sveitirnar til kaupa á tækjum og húsnæði og hefur sú uppbygging ver- ið í gangi undanfarna áratugi. Tel ég óhætt að segja að hún hafi gengið mjög vel. Þá er að nefna slysavarnadeildirnar sem starfa á hverjum stað. Þær skipt- ast í kvennadeildir og blandaðar deildir og veita björgunarsveitunum stuðning, jafnframt því sem þær sinna ýmsum slysavarnamálum, bæði á sjó og á landi. Þær taka þátt í þeim átaks- verkefnum sem SVFÍ efnir til, svo sem í sambandi við umferðarslys, umferðarfræðslu, slysavarnir barna og öryggismál í landbúnaði. Einnig er hafin vinna að slysavörnum aldr- aðra.“ Liggur við að færri en vilja komist í unglingadeildirnar! „Eg vil svo sérstaklega geta um hið afar öfluga unglingastarf SVFI. Fyrir um það bil fimmtán árum voru starf- andi aðeins tvær unglingadeildir, en nú hin síðustu árin hefur þeim ljölgað svo mjög að þær eru orðnar rúmlega fjörutíu. Þarna er um mög öflugt og gott starf að ræða og felst gildi þess ekki síst í því að unglingadeildirnar tryggja stöðuga endurnýjun í félag- inu. Unga fólkið kemur strax til starfa og fær að kynnast starfseminni og er gleðilegt til þess að vita hve mikil ásókn er í að komast í unglingadeild- irnar. Liggur við að sums staðar þurfi að takmarka inngönguna. Astæða þess er að starfið hvílir að miklu leyti á vinnuframlagi umsjónarmanna ung- lingadeildanna, en það er að vonum takmarkað hvað hægt er að leggja á þá, svo þeir geti sinnt því sem af þeim er krafist. Umsjónarmennirnir eiga því miklar þakkir skildar, þar sem þeir eru burðarásinn í þessu starfi. Árlega eru haldin mót unglingadeildanna og fara þau fram annað árið heima í landshlutunum, en hitt árið eru haldin landsmót. Þannig var veglegt lands- mót haldið í júlí síðastliðið surnar í Svartsengi við Grindavík og stóð það í fjóra daga. Komu þar um 500 ung- lingar saman og fóru yfir öll helstu at- riðin í björgunar- og slysavarnamál- um. Mótsgestum var skipt upp í átta hópa og fór sérhver hópur í gegnum öll verkefnin. Höfðu unglingarnir þannig nóg að gera allt frá því er þeir komu á svæðið og þar til þeir fóru heim að móti loknu: Farið var upp á fjöll, út í hraun og út á sjó. Farið var yfir fluglínutæki, æfð leit og björgun á sjó, sig í klettum, skyndihjálp, leit með hundum og breiðleit á landi. Fleira mætti telja.“ Björgunarskólinn — samræm- ing fjarskipta- og leitarkerfis „Við höfum verið í mjög góðu samstarfi við Landsbjörg og rekið í samvinnu við þá Björgunarskólann, en þessi skóli sinnir fræðslu fyrir all- ar björgunarveitir á landinu. Þar er bæði um að ræða grunnámskeið og framhaldsnámskeið. Þetta er farskóli, og leiðbeinendur sem þjálfaðir hafa verið í hinum ýmsu greinum björgun- arstarfa fara um landið og miðla af þekkingu sinni. Þessi skóli hefur nu starfað í um það bil fjögur ár. Áður var Landsbjörg með sinn sérstaka skóla og Slysavarnafélagið með sína fræðslu, en nú hefur þetta verið sam- ræmt og með samræmingunni hefur náðst fram ákveðinn sparnaður. En
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.