Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Blaðsíða 9

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Blaðsíða 9
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 9 Á annað hundrað nöfn skráð á Minningaröldurnar „A fyrra ári voru Minningaröldur Sjómannadagsins í brennidepli, en síðasta Sjómannadag var ár liðið frá vígslu þeirra. Þá hafði þegar sýnt sig hve þakklátt þetta framtak var, og nú hafa nöfn á annað hundrað sjómanna er farist hafa og týnst verið skráð á öldurnar. Hafa Sjómannadagsráði enda borist þakkir víða að og hefur það glatt okkur sem að þessu stóðum. En þar sem hér er um að ræða minn- ingaröldur Sjómannadagsins, hefur ártal þeirra sæfarenda sem farist hafa og týnst markast af fyrsta Sjómanna- deginum 1938. Við þetta eru þeir sem eiga sjómenn er týnst hafa í sjó fyrir þennan tíma ekki fyllilega sáttir, og höfum við sannarlega skilning á því. Þess vegna höfum við nú í annað sinn ritað bréf til Biskupsstofu, þar sem stjórnendur kirkjugarðasjóðs hafa að- setur, og óskað eftir styrk frá þeim til þess að reisa nýja öldu er helguð sé sjómönnum sem týndust fyrir 1938. Þar sem við nú ræðum um Minn- ingaröldurnar vil ég benda á að því miður finnst mér á skorta að ýmsar rótgrónar útgerðir, sem orðið hafa fyr- ir því óláni að missa sjómenn sína í hafið og þeir týnst, hafi sýnt þessu máli skilning. Vona ég að þeir sem vita upp á sig vanrækslusynd hvað þetta snertir bæti hér úr og komi með nöfn þeirra sjómanna á minningaröld- urnar. Vonandi kemur að því að engin útgerð vilji verða undantekning að þessu leyti. Víst gerast þess dæmi að útgerðir sem misst hafa menn og þeir týnst, stundum skip með allri áhöfn, hafi verið lagðar niður. En eftir sem áður má leysa málið með góðurn vilja. Mér er kunnugt um að í stöku slíkum tilfellum eru ættingjar teknir að vinna að úrlausn, og þótt það gangi kannski misjafnlega og taki sinn tíma trúi ég að úr muni rætast á endanum.“ Reykvískri sjómannastétt feistur minnisvarði „Nú er því verkefni líka farsællega lokið að reisa reykvískri sjómanna- stétt minnisvarða sem henni er sam- hoðinn, en á síðasta Sjómannadag var styttan „Horft lil hafs“, afhjúpuð við Reykjavíkurhöfn. Hún stendur á Mið- bakkanum og er þar til stórrar prýði og minnir á hverjir það voru sem breyttu bæ í borg. Segir það sitt um þetta minnismerki að þótt ýmsir menningarfrömuðir borgarinnar hafi ekki verið á eitt sáttir um styttuna í upphafi, þá hefur greinileg hugarfars- breyting átt sér stað. Stjórnendur hafnarinnar eru mjög ánægðir með bæði framtakið og styttuna sjálfa, og í Ijós koin þegar skemmtiferðaskip lágu við bakkann á síðasta sumri, að ferðalangarnir stóðu í langri röð við fótstall sjómannanna tveggja og biðu þess að fá sig myndaða þar. Sú athygli sem styttan nýtur hjá þessu erlenda fólki leiðir hugann að því að textinn á stallinum þyrfti einnig að vera þar á ensku, en hann hljóðar svo: „Þeir er þekkja nafn þitt, treysta þéi; því að þú Drottinn yfirgefur eigi þá, er þín leita. Sl. 9. 11. Horft til ltafs höf. Ingi Þ. Gíslason Sjómannadagurinn í Reykjavík og Hafnarfirði reisti þennan minnisvarða hér, á hinum fornu fjörusteinum Reykjavíkur, í tilefni 80 ára afmælis Reykjavíkurhafnar og 60. Sjómanna- deginum, árið 1997. í virðingu og þökk við íslenska sjómannastétt. ...flytja þjóðinni auð, sœkja barninu brauð, fœra björgin í grunn undir framtíðarhöll. Örn Arnarson “ Það var virðuleg athöfn þegar stytt- an var afhjúpuð. Til þess var fenginn Gylfi Þ. Gíslason, bróðir höfundar hennar, og borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, flutti ávarp. Þeir voru margir sem lagt höl'ðu hönd á plóginn áður en þessi stóra stund rann upp, og þar á meðal vil ég geta um Eimskipafélag Islands sem flutti styttuna án endurgjalds. Færi ég forráðamönnum félagsins þakkir fyrir þann velvilja í okkar garð sem það ber vitni um.“ Margir sækja nýju sundlaug- ina og endurhæfingarmiðstöð- ina „Fleiri viðfangsefnum fékkst lokið á síðasta ári, en þann 5. mars 1997 var sundlaug og endurhæfingarmiðstöð við Hrafnistu í Reykjavík tekin í notk- un. Var þá haft eftir einum heimils- mannanna að þetta veglega mannvirki væri „uppspretta andlegrar og líkam- legrar vellíðunar.” Þessi maður hafði lög að mæla, því aðsóknin að þessari aðstöðu hefur verið mikil og farið sí- vaxandi. Veldur því að í vaxandi mæli sækir heimilisfólk Hrafnistu sund- laugina, sem og íbúar í þjónustuíbúð- um okkar við Jökulgrunn og við Kleppsveg, auk aðila í Norðurbrún og hjúkrunarheimilinu Skjóli. Er þá ótal- ið fólk sem býr hér í grenndinni. Þetta þarf engan að undra, því laugin og endurhæfingarstöðin eru sérlega full- komin og glæsilega frá þeim gengið og henta þeim vel sem eiga erfitt með hreyfingar. Við erum nú orðnir tals- vert stórir aðilar þegar að rekstri sundlauga kemur, því auk sundlaug- anna í Hafnarfirði og í Reykjavík erum við með sundlaug í orlofshúsa- byggðinni okkar á landareign sjó- mannasamtakanna að Hraunkoti í Grímsnesi. Þá var hinn 1. febrúar á þessu ári tekinn í notkun nýr salur á efstu hæð C-álmu Hrafnistu í Reykjavík, sem öll var endurnýjuð. Tekur salurinn á annað hundrað manns. Hann er notað- ur fyrir guðsþjónustur, er fræðasetur fyrir starfsfólkið okkar og býður loks upp á ýmsa dægradvöl fyrir heimilis- fólkið. Einnig aðstöðu til afmælis- fagnaðar þegar á þarf að halda. Um leið voru innréttuð tjögur rúmgóð ein- staklingsherbergi á hæðinni með full- kominni aðstöðu í samræmi við nú- tímakröfur. Þau fengu heyrnarlausir, aldraðir einstaklingar til afnota sam- kvæmt samkomulagi við Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið. Þessi nýju herbergi minna á að fólk vill nú hafa rýrnra um sig en var og stefnum við á í framtíðinni að stækka herbergin á Hrafnistu í Reykjavík með því að gera
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.