Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Síða 35
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
35
anna er bæði óhentugt og ófullnægj-
andi með tiliiti til framtíðarþarfa þess-
ara menntastofnana.
Sjómannaskólinn er að áliti Holl-
vinasamtakanna ein veglegasta skóla-
bygging landsins. Húsið var á sínum
tíma atbent sjómannastéttinni, og í
hugum landsmanna er Sjómannaskól-
inn menntasetur og sameiningartákn
þeirra starfsstétta sem þangað sækja
starfsmenntun sína.
Það má undir engum kringumstæð-
um gerast að Sjómannaskólanum
verði ráðstafað til annarar starfsemi
en þar fer nú fram, nema um það ríki
full sátt allra sem hlut eiga að máli.
Fundurinn tekur undir eftirfarandi
efnisatriði í sameiginlegri samþykkt
skólanefnda Stýrimannaskólans og
Vélskóla íslands frá 29. október sl.:
„að Sjómannaskólinn henti þeirri
starfsemi sem þar fer fram og nýting
hússins sé eðlileg.“
„að sú hugmynd að flytja starfsemi
skólanna í húsnæði við Höfðabakka
bæti hvorki núverandi húsnæðisað-
stöðu skólanna né fullnægi framtíðar-
þörfum þeirra.“
„að endurskoðun á húsnæðisað-
stöðu skólanna verði að eiga sér stað
út frá forsendum og hagsmunum skól-
anna og með ítarlegri undirbúnings-
vinnu vegna þeirrar endurskoðunar á
húsnæðisaðstöðu skólanna sem um er
rætt í samþykkt skólanefndanna.“
Hollvinasamtök Sjómannaskólans
lýsa sig reiðubúin að taka þátt í undir-
búningsvinnu vegna þeirrar endur-
skoðunar á húsnæðisaðstöðu skól-
anna sem um er rætt í samþykkt
skólanefndanna.
Jafnframt eru samtökin reiðubúin
að taka þátt í umfjöllun um þær breyt-
ingar á námi skipstjórnarmanna og
vélstjóra sem miða að því að búa
þessar starfsstéttir betur undir við-
fangsefni í tæknisamfélagi á nýrri öld.
Brýnasta verkefnið varðandi hús-
næði Sjómannaskólans er að áliti
Hollvinasamtakanna að ráðast í við-
gerðir á húsinu og forða því frá frek-
ari skemmdum.“
Valinn maður í hverju rúmi
Þeir skólameistararnir Björgvin
Þór Jóhannson og Guðjón Armann
Eyjólfsson ávörpuðu nú viðstadda og
þar með var komið að lokum fundar-
ins.
Fundarstjóri þakkaði ræðumönnum
málefnalega umræðu og sagði að end-
ingu:
„Ágætu hollvinir. Nú líður að lok-
um þessa fundar. Ég vil þakka fundar-
mönnum fyrir tillitssemi við fundar-
stjórn mína hér í kvöld. Nú tekur
stjórn samtakanna við og leiðir starf
Hollvina, þar er valinn maður í hverju
rúmi. Vænti ég þess að fjölþætt og
víðtæk reynsla þeirra við stjórnunar-
störf nýtist vel í þeirra nýja, vanda-
sama starfi.
Svo segir í Hávamálum:
„Sá einn veit,
er víða ratar
og hefurfjöld offarið,
hverjum geði
stýrir guma
sá er vitandi vits. “
Sú reynsla dugar vonandi til þess
að sú sókn sem nú þarf til að koma,
fleyti málefnum Sjómannaskólans og
menntun sjómannastéttarinnar á þann
stað sem nauðsynlegur er.“ Enginn
hafði kvatt sér hljóðs og þakkaði
Kristján fundarmönnum fundarsókn-
ina, enn og aftur.
Nú sté nýkjörinn formaður samtak-
anna Sigurður Hallgrímsson í ræðu-
stól og þakkaði það traust sem sér
væri sýnt með því að hljóta kosningu
til starfa fyrir þessi samtök sem hann
sagðist vonast eftir að geta orðið að
liði. Hann fór nokkrum orðum um til-
lögu Björns Bjarnasonar mennta-
málaráðherra og lét að því liggja að
svo gæti farið eftir allt saman að hún
gæti orðið til góðs og til framdráttar.
Þakkaði Sigurður undirbúningsnefnd-
inni vel unnið starf og lýsti að lokum
þeirri skoðun sinni hve ómöguleg eða
óframkvæmanleg sú hugmynd væri
að ætla að flytja skólann. „Við mót-
mælum allir,” sagði Sigurður og sleit
fundi klukkan 22.05.
Sendum öllum íslenskum sjómönnum
dnuuhróslur á íiátíáisdegi fjeirra
s
Siglingastofnun Islands
Vesturvör 2