Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Page 36
36
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
„Ometanlegt að hafa báða skólana
undir sama þakiu
s
— segir Guðjón Armann Eyjólfsson skólameistari Stýrimannaskólans
Miklar breytingar eru í vænduni
í Stýrimannaskólanum, en á kom-
andi hausti verður tekið upp
áfangakerfi og jafnframt boðið upp
á nýja braut, Sjávarútvegsbraut.
Með þessu fyrirkomulagi mun
námið opnast stórlega, þar sem
fyrri menntun manna verður nú
metin til fulls við inntöku í skólann
og sveigjanleiki áfangakerfisins
gefur kost á mismunandi leiðum á
námstímanum. Er að vænta að
þetta verði til að auka aðsókn að
skólanum. Til þess að fræðast nán-
ar um þessi efni og fleiri sem varða
sjómannamenntunina, áttum við
viðtal við Guðjón Ármann Eyjólfs-
son skólameistara Stýrimannaskól-
ans. Ekki fór hjá að þau mál sem
svo mjög bar á í umræðunni á sl.
vetri, það er sú hugmynd að flytja
Stýrimannaskólann og Vélskólann
úr hinu virðulega húsi sem þessuni
skólum var á sínum tíma tileinkað
af ríkisstjóra og ríkisstjórn lands-
ins, væru skólameistara ofarlega í
huga. Hann telur þó að viðunandi
lausn hafi fundist, ef forsendur fyr-
ir samkomulagi og þar með lausn á
húsnæðisvanda KHI, sem lagðar
voru fram á fundi með mennta-
málaráðherra hinn 27. febrúar sl.,
verða haldnar. Aðalefni þessara
forsendna er samnýting húsnæðis,
bæði í Sjómannaskólanum og í hús-
næði Kennaraháskólans. Stýri-
mannaskólinn í Reykjavík og Vél-
skóli Islands eiga þó ætíð að hafa
forgang að húsnæði Sjómannaskól-
ans. Að sjálfsögðu treysta allir gerð-
um samningi. „Orð skulu standa,“
segir Guðjón Ármann.
„Því er ekki að leyna að hugmynd-
ir yfirvalda menntamála um að flytja
Stýrimannaskólann ásamt Vélskólan-
um hafa verið mér ofarlega í huga og
satt að segja hafa þær truflað okkur
Guðjón Armann Eyjólfsson. (Ljósm.:
Sjómdbl. AM)
við aðkallandi vinnu vegna breytinga
sem verið er að gera á náminu,“ segir
Guðjón Ármann. „Þetta ber að harma.
Eg tel að hefðu skólarnir verið fluttir
hefðum við brugðist öllum og þá auð-
vitað sérstaklega sjómönnum. Mót-
mæli bárust alls staðar að — frá allri
sjómannastéttinni, samtökum sjó-
manna og einstaklingum úr öðrum
starfsgreinum. Gamlir nemendur héð-
an og fleiri tóku sig saman og stofn-
uðu Hollvinasamtök Sjómannaskól-
ans á fjölmennum fundi sem haldinn
var hér í hátíðarsal okkar þann 26.
nóvember sl. Þar kom enn betur í ljós
hve breið samstaðan er. Mér fyndist
ég ekki hafa verið heiðarlegur eða
gegnt mínu embætti ef ég hefði þagað
um álit mitt á þessu máli.
Stýrimannaskólinn er með elstu
skólunum í Reykjavík, stofnaður
1891, og húsið var reist og gefið hon-
um og sjómannastéttinni sérstaklega í
Ijósi mikilvægis þessarar fræðslu fyr-
ir undirstöðuatvinnuveg okkar. Þegar
verið var að undirbúa bygginguna á
kreppuárunum árið 1938 er tekið fram
að skólinn skuli vera „djarfmannleg
auglýsing til vegfarandans um starf
og þýðingu hinnar íslensku sjó-
mannastéttar." Sjómannaskólanum
var líka valin stór lóð á hentugasta
stað sem hugsast gat fyrir þessa
kennslu, enda segir í tillögum á Al-
þingi sama ár, 1938: „Eina tryggingin
fyrir fjölþætta og merkilega stofnun
eins og sjómannaskólann er að hafa
nóg landrými fyrir langa þróun.“ Og
vígsla hússins þann 4. júní 1944 var
tákn þess og staðfesting að íslending-
ar ætluðu að vera og gætu verið full-
valda þjóð. Það hefur byggingin líka
svo sannarlega verið og hún hefur
vakið aðdáun og næstum öfund er-
lendra manna sem þekkja til sjó-
mannafræðslu. Hvernig má það vera
að sá andi og sá stórhugur sem lá að
baki byggingu skólans virðist svo
gjörsamlega á bak og burt hjá sumum
mönnum? Islendingar eru fátækir að
hefðum og Sjómannaskólinn hefur
fyrir löngu síðan unnið sér sess þar
sem hann stendur sem Sjómannaskóli
Islands og er leiðarviti sjómanna til
starfa og mennta. Þar hafa verið til
húsa Stýrimannskólinn í Reykjavík
og Vélskóli Islands síðan húsið var
tekið í notkun þann 13. október
1945“
Endurbygging
Sjómannaskólans
„Þótt nemendafjöldinn í hefð-
bundnu skipstjórnarnámi hafi verið i
lágmarki síðustu fjögur árin, þ.e. fra
1993-1997, þá hafa verið gefin út
samtals 266 skírteini til 190 einstak-
linga. Sennilega gera fáir sér líka
grein fyrir því að við höfum á sama
tíma haldið yfir 100 námskeið í fjöl-
mörgum greinum og gefið út um 700
skírteini vegna þeirra. Húsrými fyrir