Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Síða 93
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
93
„Skipti engum togum að skipið
hófst upp og tók flugið44
Þór Vignir Steingrímsson, löngum yfirvélstjóri á varðskipinu Tý, segir hér frá ýmsu
eftirminnilegu sem við hefur borið á löngum sjómannsferli. Hann er nú að láta af
störfum eftir 28 ára starf hjá Landhelgisgæslunni
Það var árið 1985 að Guðniund-
ur Kjærnested skipherra á Tý
minnti Þór Vigni Steingrímsson á
að þeir lieföu þá setið saman til
borðs í tíu ár. Það er vissulega löng
samvera tveggja manna á sama
skipi, og átti Þór Vignir þá samt eft-
ir að vera á Tý í tólf ár til viðbótar,
en hann hefur veriö yfirvélstjóri á
skipinu frá því er það var byggt.
Þegar þetta er skrifað er hann um
það hil að láta af störfum eftir 28
ára störf hjá Landhelgisgæslunni
og 43 ára sjómennsku. Sjómanna-
dagsblaðið bað Þór Vigni að rekja
fyrir lesenduin sínum eitt og annaö
sem á dagana hefur drifið á þessum
langa tíma og af ýmsu reyndist að
taka, eins og vænta mátti. Hann
byrjaði til sjós á togurum árið 1954,
og var togaramaður í tvo áratugi,
en þá réði hann sig til Landhelgis-
gæslunnar og hefur verið í |)jónustu
hennar síðan. Hann býr nú ásamt
konu sinni, Magneu Jónínu Þor-
steinsdóttur, að Arahólum 2 í
Reykjavík.
„Ég fæddist að Spítalastíg 6 í
Reykjavík þann 28. febrúar 1933 og
var ég yngstur sex systkina, þriggja
bræðra og þriggja systra. Foreldrar
okkar voru þau Steingrímur Magnús-
son sjómaður og fiskmatsmaður í
Reykjavík og kona hans Vilborg Sig-
þrúður Vigfúsdóttir,“ segir Þór Vignir.
„í föðurættina er ég Reykvíkingur,
því bæði faðir minn og afi voru reyk-
vískir sjómenn, en móðurættin er
komin úr Alftaveri í Vestur-Skafta-
fellssýslu. Pabbi var á sjó allt fram til
1950 eða svo, en hann var lengst af á
togurunum gamla Helgafelli og síðar
nýja Helgafelli, sem Skúli Thorodd-
sen gerði út. 1940 flutti fjölskyldan
svo að Lokastíg 19 og þaðan á ég
Þór Vignir Steingrímsson: „Eg kem til með að sakna Týs, sem ég hefverið svo
nátengdur alltfrá því er hann var í smíðum. “ (Ljósm.: Sjómdbl. AM)