Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Page 111
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
111
hæst ber þó sjálfa samræminguna og
aukið framboð á hvers konar fræðslu
og þjálfun. Mikil fræðsla hefur verið
sótt erlendis, en þar höfum við kynnst
því hvernig erlendar björgunarsveitir
vinna og það hefur styrkt og bætt starf
Björgunarskólans. Slysavarnafélagið
hefur um langt skeið tekið þátt í al-
þjóðlegu samstarfi og á aðild að Al-
þjóðasamtökum sjóbjörgunarfélaga
og ýmsum öðrum samtökum, norræn-
um og evrópskum. Þá hefur félagið
átt gott samstarf við bresku strand-
gæsluna og er í bandarískum samtök-
um, NASAR, sem eru samstarfsvett-
vangur um björgunarmál vestra.
Þá rekum við ijarskiptakerfið og
endurvarpakerfið í samstarfi við
Landsbjörg, og er það orðið mjög gott
og öflugt, enda verður svo að vera þar
sem fjarskiptin eru grunnurinn þegar
björgunaraðgerðir eru í gangi. Þótt
síminn sé orðinn gott tæki, þá eru
honum ákveðin takmörk sett, og þau
takmörk má í flestum tilfellum yfir-
vinna með fjarskiptakerfí okkar. Þá
erum við með sameiginlegt leitar- og
björgunarskipulag sem við vinnum
eftir — „Lands- og svæðisstjórn
björgunarsveita“. Það byggist á því að
landinu er skipt upp í 18 svæði og á
hverju svæði er ein svæðisstjórn sem
sinnir samræmingu á leitar- og björg-
unarstarfi á sínu svæði. Taki björgun-
araðgerð yfir fleiri en eitt svæði kem-
ur Landsstjórn inn í og aðstoðar við
samræminguna. Þetta kerfi hetur ver-
ið að þróast undanfarin ár og er feng-
in af því mikilsverð reynsla og ríkir
um það góð sátt — en áður en kerí ið
kom til sögu var stundum um það rætt
að björgunaraðilar væru í nokkurs
konar „kapphlaupi." Þetta er nú alveg
úr sögunni, aðstæður í hverju tilviki
eru kannaðar og síðan sendur sá
mannafli og tækjabúnaður sem nauð-
synlegur er til að leysa verkefnið.
Þannig eru aðgerðirnar nú orðnar
mjög samhæfðar og markvissar."
Umferðaröryggisfulltrúi í
hverjum landshluta
„Ég vil líka nefna að við erum í
mjög nánu samstarfi við Umferðarráð
og má geta um að á síðasta ári var
ráðinn sérstakur umferðar-öryggis-
fulltrúi á Suðurlandi. Þetta hefur gef-
„/ tengslum við landsþingið sem haldið verður dagana 29. til 31. maí í Sand-
gerði, er œtlunin að opna söguminjasafn í Garðinum, “ segir Gunnar. (Ljósm.:
Sjómdbl. AM)
ið svo góða raun að í ráði er að ráða
umferðaröryggisfulltrúa í alla lands-
hluta. Þeir munu hefja störf í sumar
og munum við þá reyna að taka á um-
ferðaröryggi í bæði dreifbýli og þétt-
býli ásamt Umferðarráði og leitast við
að virkja starfskrafta okkar félags-
fólks til þess. Samhliða þessu verður
reynt að koma á ákveðnum tengslum
til samræmingar við umferðarörygg-
isnefndir Umferðarráðs, lögreglu,
sveitarstjórnir og almenning á svæð-
unum. Eins og við vitum þá hafa
mjög alvarleg umferðarslys orðið úti
um land sem segja má að verið hafi í
öfugu hlutfalli við sjálfan umferðar-
þungann og tengjast því meir umferð-
arhraðanum. Þannig létust 130 manns
á tíu ára tímabili í umferðarslysum úti
á landi, meðan um 85 manns létust í
þéttbýli. Þetta segir okkur að þótt
slysin úti á landi séu færri, þá verða
þau gjarna alvarlegri.
En þar sem ég hef hér rætt um sam-
starfsaðila SVFÍ, vil ég bæta því við
að hvað fjáröflun snertir höfum við
verið í samstarfí við Rauðakross ís-
lands, Landsbjörgu og SÁÁ og rekið
ásamt þeim spilakassa, sem stundum
hafa að vísu hafa verið gagnrýndir. En
þótt við á sinn hátt tökum undir þá
gagnrýni, þá teljum við að meiri hluti
fólks spili í þessum kössum sér til
ánægju og jafnframt til þess að
styrkja þetta starf. Spilakassarnir
gegna óneitanlega meginhlutverki í
fjáröflun okkar auk happdrættisins, en
eins og ég sagði rennur ágóði af happ-
drættinu til reksturs björgunarskip-
anna.“
„Ég hef nú drepið á ýmsa þætti
sem hæst ber nú á 70 ára afmælinu
okkar. Ætlunin er að minnast afmæl-
isins á veglegan hátt og verður það
gert á landsþingi SVFÍ sem að þessu
sinni verður dagana 29.-31. maí í
Sandgerði. 1 tengslum við þingið er
ætlunin að opna söguminjasýningu í
Garðinum. Þar verður reynt að gera
sögu félagsins nokkur skil og mun
sýningin verða grunnur að sögusafni
félagsins. Hefur fengist undir safnið
húsnæði sem er í eigu björgunarsveit-
arinnar Ægis í Garði, en þeir félagar
fengu þetta húsnæði næstum gefið
fyrir um ári síðan.
Þar sem svo skemmtilega vill til að
Sjómannadagurinn fagnar einnig
stórafmæli um þessar mundir vil ég
ljúka jressu spjalli með því að senda
sjómannasamtökunum og sjómönn-
um öllum innilegar árnaðaróskir með
þökk fyrir áratuga samstarf, þar sem
ekki hefur borið skugga á.“
AM