Eimreiðin - 01.10.1940, Blaðsíða 25
eimreiðin
Sögusamkepni Eimreiðarinnar 1940.
— Úrslit. —
Til verðlaunasamkepni þeirrar, sem boðað var til með aug-
lýsingu í 2. hefti Eimreiðarinnar þ. á., hafa borist 22 sögur og
3 ritgerðir. Skyldu sögumar og ritgerðirnar ekki vera lengri
en sem svaraði 5 meginmálssíðum í Eimreið. Voru verðlaunin
þá einnig miðuð við þessa takmörkuðu lengd, en lengdin tak-
niörkuð til þess meðal annars að prófa að nokkru, hvort það
álit hafi við rök að styðjast, að einn algengasti ágalli íslenzkra
höfunda sé sá, að þeir kunni ekki að takmarka sig. En í því
að kunna að takmarka sig liggur oft mestur vandinn, og marg-
ar fegurstu perlur heimsbókmentanna eiga einmitt fegurð
sína að þakka þessu mikilvæga grundvallaratriði allrar sannr-
ar listar.
Það hefur nú farið svo, að nálega allar hinar innsendu sögur
°g ritgerðir reyndust lengri en tilskilið var, þó að litlu muni
á sumum þeirra. Það þótti þó ekki fært að láta verðlaun í
sögusamkepninni falla niður af þeirri ástæðu einni, þar sem
bátttakan var góð og allmargar sögurnar yfirleitt vel ritaðar.
Hinsvegar hefur verið ákveðið að framlengja verðlaunarit-
gerða-samkepnina, vegna mjög lítillar þátttöku, til 1. febrúar
1941, og gilda að öðru leyti um hana áfram þau sömu ákvæði
°g auglýst voru í 2. hefti Eimreiðarinnar þ. á.
Sú saga, sem dæmst hefur bezt þeirra, er inn komu til þess-
arar samkepni og hlotið hefur söguverðlaun Eimreiðarinnar
að þessu sinni, er sagan Kvöld eitt í september, merkt
Hrásteinn og reyndist að vera eftir Stefán Jónsson,
Eiríksgötu 35 í Reykjavík. Af öðrum innkomnum sögum, sem
teljast mega næstar að gæðum, má nefna þessar: Síðasti
kaPÍtulinn, merkt Hróaldur, Spor í sandi, merkt
Hár og Þórkatla á Núpi, merkt A r n k e 11.
Svo þakkar Eimreiðin öllum þeim, sem þátt tóku í smá-
sögusamkepninni og lögðu með því sinn skerf til þess, að hún
aæði sem bezt tilgangi sínum. Loks vill Eimreiðin færa smá-
Sagnahöfundinum Þóri Bergssyni sérstakar þakkir fyrir mikil-
Vaega aðstoð hans við yfirlestur og gagnrýni á efni því, sem
H1 samkepninnar hefur borist.
21