Eimreiðin - 01.10.1940, Blaðsíða 56
352
UM NÝFUNDNALAND OG SKULDABASLIÐ ÞAR eimrbiðin
né eigin mynt. Peningaveltan vai- i höndum enskra og kana-
dískra banka. Þjóðin gat varla heitið vera fjár síns ráðandi.
Maður, sem á feikna auð í jarðeignum, skógum og nám-
um, miklu verðmeiri en skuldir nema, fer ekki á höfuðið,
meðan hann kann með fé sitt að fara og hefir traust annara.
En stjórn Nflands hafði hvað eftir annað brugðist trausti sinna
lánardrotna með gálausri fjármálastefnu, þar til landið komst
í fjárþrot. Til afsökunar má segja, að í rauninni brast stjórn-
ina heimild til að i'ara frjálslega með eignir landsins. Eng-
lendingar treystu ekki lengur neinni inniendri stjórn að ráða
fjármálum landsins og' tóku ráðin í sínar hendur (en að vísu
eftir óslc stjórnar Nflands, eða svo var það látið heita).
Það er margt svipað um bæði löndin, Nfland og ísland.
Aðalatvinnuvegur heggja er fiskveiðar, enda liggja hæði við
beztu fiskimið heimsins.
Báðar þjóðir hafa átt lán sitt og lífsgengi undir kaþólskri
hjátrúarkreddu og selt páfans söfnuði saltfisk.
Bæði löndin eru að mestu óunnin enn og búa yfir feilcna
náttúruauðæfum.
Bæði eiga sjálfstæðið aðallega að þakka einangrun af nátt-
úrunnar völdum og að erlendar þjóðir hafa ekki séð sér hag 1
að flytja þangað.
Bæði eru nærri jafnstór. Bæði hafa fengið óorð fyrir itla
veðráttu.
Hafísinn hefur verið hvoru um sig „landsins forni ljandi •
Aðalbjargræðistiminn er fjórir mánuðir.
Samskonar plágur hafa þjakað báðum þjóðunum: harð-
indi, skiptapar, aflaleysi, eldur (jarðeldar á íslandi, en bæj-
arbrunar og skógareldar á Nflandi), sullur, sóttir, lánsverzlun,
skuldir og — aðflutningshann á áfengi.
Mestur hluti beggja landanna er vcgtausar óbygðir. Bæði
eru afarstrjálbygð, og of margt fólk hefur flúið land og farið
til Kanada og Bandaríkjanna, en seinna til kaupstaða og
þurrabúðar, í stað þess að rækta landið.
Báðar þjóðir reyna að laða að sér ferðamannastraum, og 1
höfuðborgum beggjá hefur stjórnin á sína ábyrgð látið reisa
hótel fyrir burgeisa.
Báðar þjóðir hafa lent í f járkröggum og dýrtíð vegna ótínia