Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1940, Síða 45

Eimreiðin - 01.10.1940, Síða 45
eimreiðin Á MÖLINNI 341 !Í mölinni. Þær tipla sárfættar á þunnum strigaskóm. Búning- ur þeirra er allavega litir kjólar og hvítir sloppar, skozk háls- knýti eða marglitir silkiklútar. Alt er sundurleitt og hjáróma. Fegurðarþrá þeirra er barnaleg og óþroskuð, og mölin drepur hana. Þarna er eldrauð stelpa, kornung og kotroskin. Alt er rautt á henni. Úfinn hárlubbinn undir kaskeitishúfunni er eld- rauður. Andlitið er rautt og hlæjandi. Rauð peysa með hálf- ermuin, rauðir, berir handleggir og rauðrósótt músselínspils. Hún er svo ung og sterk og stælt, þessi stelpa. Hún bognar ekki! Og alt lífið er eldrautt í blágráum glaðopnum augunum hennar.---------- En lífið á mölinni er hjáróma og tilbreytingarlaust. Hver dagurinn er þar öðrum líkur, með skin og skúrir á víxl. Þreytt augu, bogin bök og signar axlir. Iljataugarnar smá-dofna og verða tilfinningasljóar og ónæmar. Stælingin hverfur úr göngu- laginu, og hreyfingarnar verða fjörlausar og silalegar, með einstöku rykkjóttum fjörkippum, sem minna á hvumpna ótemju. Og þegar ungu stúlkurnar stelast á ball á sunnudags- kvöldin — eða eru boðnar á laugardagskvöldið — þá er dansgólfið eins konar fiskireitur og hreyfingar þeirra allra niótaðar af mölinni. Og hugirnir ungu eru svo einkennilega þurrir og skrælnaðir og minna óþægilega á sólþurkaðan salt- fiskinn. Þær eiga engan fögnuð. Enga léttfætta gleði. Aðeins hvellaii reita-hlátur og grófgerðan gáska. Lífið hefur snuðað þær í viðskiftunum. Keypt æsku þeirra fyi'ir lítinn pening og gefið þeim unga elli í kaupbæti, með signar axlir og bogin bök. Og þær vita ekki, hvað þær hafa mist. Því að þær liafa aldrei átt æsku sína sjálfar. Svo líður ævin. Og lífið streymir að ósi. Ungu stúlkurnar verða mæður í mynd mæðra sinna. Alt líf þeirra þjappast saman frá báðum endum og verður jafnbola og siginaxla og sviplaust. Gleðin visnar í augum þeirra, sem fyrir löngu eru oi'ðin rauðhvarma og sár og sljó af reitabirtunni. Og reitur- lr*n, sólhvítur og suddagrár, verður sjóndeildarhringur þeirra 0S sálarsvið. Sálarsvið öreiga sálar.------— ’ Saltfiskurinn selur mark sitt á þjóðina. Og þjóðin trúir á
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.