Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1940, Side 58

Eimreiðin - 01.10.1940, Side 58
354 UM NÝFUNDNALAND OG SKULDABASLIÐ ÞAR eimheiðin inn, og um sveitalíf og sveitamenningu (í íslenzkum skilningi) er varla að tala. T. d. eru engar sveitarstjórnir í öllu landinu og í kauptúnunum engar bæjarstjórnir utan höfuðborgar- innar. Þaðan er öllu stjórnað, og má geta nærri, hve hentugt það er og affarasælt fyrir fjarlægar hygðir og sjópláss. Helmingur þjóðarinnar býr í St. Johns og næsta umhverfi. (Það er eins og ef helmingur íslendinga væri búsettur í Reykja- vík og á nesjunum tveimur og suður með sjó.) Það er óþarf- lega stórt höfuð fyrir strjálbygt land, sem ekki er stærra. Þetta er eini staðurinn, þar sem vandfýsnir heimsborgarar geta unað sér. Þarna sitja burgeisar landsins, og þaðan er öllu stjórnað af værukærum skrifstofulýð, málskrafsmönnum og blaðstjórum. En annars vegar er mikil fátækt og sálarsorg, því hingað er stöðugt aðstreymi uppflosnaðra aumingja og ráðleysingja úr útsveitum, til að komast á almannaframfæri og í atvinnuleysingja tölu. Og margt fóllc annað, svona upp og niður fólk, seiðist inn til borgarinnar til menta og mun- aðar. Því þar eru skólar og vísindi, jazz og dufl, dans og drykkjukrár og drykkjarföng, til að „drykkja þjóð með þrótt“. Með öðrum orðum — ein höfuðborg með velmegun og vandræðum að sama skapi, ineð viti í kollinum annarsvegar en vanka hinsvegar, — og svo eiginlega ekkert nema fátækur fiskimannalýður með öllum ströndum fram, en engin búsæl og burðarsterk bændastétt í „blómguðu dalanna skauti“. Svona er Nfland. Slíkt kann ekki góðu að stýra. Að hugsa sér Island þannig! Og svo sjálfstæðið tapaða. Var það ekki ofboð takmarkað? Og var það nokkurs virði, úr því efnalegt sjálfstæði vantaði? Var það nema til glingurs og ganians fyrir valdaþyrsta burgeisa og upp á mont? Ekki vantaði ráð- herrana. Þeir voru 2 (og einu sinni 12, og þjóðlegir allir!)- Og þingmenn voru 50. En sumir sögðu, að eftir sama mæli' kvarða og í enska parlamentinu væri nóg, að þeir væru 6 eða 7. Nú hefur landið fengið þinglausa 6 manna stjórn, auk landshöfðingjans. Það er að minsta kosti umsvifaminna og ódýrara en fyrra trússið (sem sligaði drógina). Þjóðfám ei enginn og orður engar til að hengja á spánska stevedora og grósséra vegna saltfisksins. Um gagn slíkra gersema er ekki getið í hagskýrslum, en má vel vera að það sé mikið og að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.