Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1940, Side 59

Eimreiðin - 01.10.1940, Side 59
eimreiðijj UM NÝFUNDNALAND OG SKULDABASLIÐ ÞAK 355 minsta kosti skollanum til gamans. — Hitt er lakara, að stór- kaupmannastéttin er ekki sem þjóðræknust. Þeir, sem græða, eru vísir til að bregða búi til Liverpool eða London eða New York. Og allraverst er, að þjóðin á ekki sín eigin skip til far- l>ega- og vöruflutnings. Norðmenn lána þeim dalla undir salt- fiskinn til Suðurlanda, og Englendingar og Bandaríkjamenn flytja fólk og mat úr sínum löndum. í ungdæmi mínu (fyrir 50 árum síðan) var aldrei talað um að menn væru gjaldþrota, heldur að þeir væru fallitt, og það var auðlærð ill danska. Svo var að vita, hvað þetta eiginlega þýddi. Ég spurði aðra stráka (sem voru nærri eins vitlausir °g ég sjálfur). Þeir skýrðu það strax með dæmi. Þeir tilnefndu kaupmann í bænum (þ. e. Reykjavík), sem þetta hefði hent. Hann væri orðinn félaus, búðin lokuð, og þeir sem ættu inni fengju ekkert. Til þess að mynda mér skýrt hugtak um þessi úsköp, gerði ég mér ferð til að athuga, hvernig hann lili út, þessi fallíttnáungi. Ég hitti svo á, að hann var að spássera fram og aftur utan við búðina. Nú — það var hann, hugs- aði ég, því ég kannaðist við hann. Hann var hálfdanskur, skinnhoraður og mjór og gekk hokinn, eins og magalaus og var ólundarlegur. Svona var að vera fallítt, -— hugsaði ég, og ðll einkennin festust í huga mér. Við strákar, á mínu reki þá, vorum vanir að mynda okltur fastar skoðanir um alla hluti og bitum okkur fast í ákveðin mörlt til greiningar. Þann- ig var t. d. þegar einn af eldri leikbræðrum okkar fræddi okk- Ur á, að sjá mætti á hverjum fullvöxnum manni, hvort hann væri hreinn sveinn eða ekki. Það sæist á vissum hörundsblæ bak við vinstra eyrað. Ég varð aldrei viss í að þekkja þetta °g hinir strákarnir ekki heldur, en ég mintist þessa, þegar eg ekki alls fyrir löngu las um það, að þýzkir vísindamenn á 17. öld þóttust geta séð það á augum stúlkna, ef þær hefðu látið fallerast, og að enginn minni en okkar elskulega sálmaskáld, Hallgrímur Pétursson, hefði þýtt ritgerð um þetta. Yið skulum nú slá striki yfir þessháttar falleringar og snúa °kkur aftur að þeim sönnu fallíttum í peningaheiminum. ^fyndin af hálfdanska, magasogna og vesallega kaupmann- ]num grópaðist föst í huga mér og sat þar lengi sem skýr fallitthugmynd. Svo kyntist ég seinna öðrum kaupmanni,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.